Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Starfsfólki á veitingastöðum líður betur

17.7.2008

Síðastliðið sumar tóku gildi ný lög sem m.a. vernda starfsfólk á veitinga- og skemmtistöðum á Íslandi gegn því að vinna í reykmettuðu umhverfi. Með lagabreytingunni voru reykingar ekki lengur leyfðar innandyra. Vinnueftirlit ríkisins lét kanna starfsumhverfi og líðan starfsfólksins og sýna niðurstöður að almenn ánægja er á meðal starfsfólks með lagabreytinguna.

Það var 1. júní 2007 sem gildi tóku vinnuverndarlög um að reykingar væru ekki leyfðar á neinum vinnustöðum í landinu en fram að því voru veitingastaðir með undanþágu frá þessum lögum. Vinnueftirlit ríkisins lét í desember 2007 kanna vinnuumhverfi og líðan starfsfólks á veitinga-, gisti- og skemmtistöðum.

Helstu niðurstöður könnunarinnar sýna að:

Meirihluti þátttakenda

  • var ánægður með að reykingar væru ekki lengur leyfðar á vinnustaðnum.
  • taldi líðan sína betri eða miklu betri í vinnunni eftir að reykingum á vinnustaðnum var hætt.
  • taldi að lagabreytingin hefði orðið til þess að verulega hefði dregið úr óbeinum reykingum og starfsumhverfið hefði batnað.
  • taldi að fjöldi gesta væri svipaður og hann hefði verið áður en lögin tóku gildi.

Athyglisvert er að niðurstöðurnar sýndu að lítið virtist vera um erfiðleika við að framfylgja lagaákvæðunum á vinnustöðunum og meirihluti svarenda taldi að farið væri að lögunum. En vert er að geta þess að flestir sögðu að ekki hafi verið gripið til neinna sérstaka úrræða til að bæta þjónustuna við þá sem reykja. Einhverjir þjónustuaðilar höfðu þó sett upp skjólveggi og hitalampa fyrir utan staðina eftir lagabreytinguna. En eins og landsmenn vita þá hafa á undanförnum vikum einmitt verið að berast kvartanir frá nágrönnum nokkurra staða vegna ónæðis frá reykingafólki.

Einnig er rétt að geta þess að þátttaka í könnuninni var ekki mjög mikil, svarhlutfall var 17%.
Hægt er að lesa skýrsluna í heild sinni á vefsíðu Vinnueftirlitsins eða smella á tengilinn.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica