Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Samstarfssamningur Lýðheilsustöðvar og Landspítalans undirritaður

4.7.2008

Lýðheilsustöð og Landspítali - Háskólasjúkrahús hafa gengið til samstarfs um að vinna gegn tóbaksnotkun sjúklinga með skipulagðri fræðslu fyrir þá, viðeigandi meðferð og með gerð fræðsluefnis fyrir starfsfólk á sjúkrahúsinu.

Lýðheilsustöð og Landspítalinn undirrituðu þann 2. júlí 2008 samning til þriggja ára um samstarf vegna tóbaksnotkunar sjúklinga á Landspítalanum. Fulltrúar beggja stofnana, ásamt fleirum, vinna að því að skipuleggja og vinna fræðsluefni fyrir starfsfólk og sjúklinga spítalans.

Fulltrúar Landspítalans starfa í faghópi á vegum Lýðheilsustöðvar í samvinnu við háskólasjúkrahúsið, Landlæknisembættið og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að heildarstefnumótun og samræmingu verkferla og fræðsluaðferða til að draga úr notkun á Íslandi. Mikils er vænst af samstarfi þessu enda hefur það þegar hafist og allar vísbendingar eru um að það mun gott af sér leiða.

Lesa samninginn

Faghópur um aðstoð til tóbaksleysis

Ofannefndur faghópur var skipaður til þriggja ára og er honum ætlað að vinna að stefnumótun og samhæfingu meðferðar og aðstoðar við að hætta tóbaksnotkun. Markmiðið með starfsemi faghópsins er að bæta upplýsingar og aðgengi að þeim sem og að efla aðstoð við fólk til að draga megi úr tóbaksnotkun í landinu. Faghópnum er ætlað að vinna að stefnumótun um tóbaksvarnir og samhæfa aðgerðir innan sjúkrahúsa og heilsugæslunnar. Nýjar klínískar leiðbeiningar frá landlæknisembættinu verða hafðar að leiðarljósi við vinnu faghópsins. Í hópnum eru Rakel Valdimarsdóttir, MA HR, verkefnastjóri og hjúkrunarfræðingur á Landspítala, Dóra Lúðvíksdóttir, MD PhD, lungnasérfræðingur á Landspítala, Kristján G. Guðmundsson, MD PhD, heimilis- og yfirlæknir í heilsugæslunni Glæsibæ, Anna Björg Aradóttir, MSc, yfirhjúkrunarfræðingur og sviðstjóri hjá Landlækni og Bára Sigurjónsóttir, MSN, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð, sem er í forsvari fyrir hópnum.

Námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands

Námskeið fyrir starfsfólk á heilbrigðissviði verður síðan haldið í október n.k. hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og verða nánari upplýsingar þar um birtar síðar.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica