Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Hlutu viðurkenningu fyrir starf sitt að tóbaksvörnum

30.5.2008

Tóbakslaus_dagur_08_verðlaunahafar. smella á mynd til að stækka. Alþjóðlegi dagurinn án tóbaks er haldinn 31. maí ár hvert og í ár er þema dagsins Tóbakslaus framtíð. Í tilefni af deginum efndi Lýðheilsustöð til málþings í morgun þar sem m.a. var í fyrsta sinn veitt sérstök viðurkennig fyrir starf í þágu tóbaksvarna á Íslandi. Viðurkenninguna hlutu þeir Þorvarður Örnólfsson, Pétur Heimisson og Jóhannes Jónsson.

,,SmokeFreeAward 2008”

Guðlaugur Þór Þórðarson afhendir Þorvarði Örnólfssyni viðurkenninguEins og fyrr segir er þema ársins ,,tóbakslaus framtíð" og bar dagskrá málþingsins keim af því. Guðlaugur Þór Þórðarsson, heilbrigðisráðherra, flutti ávarp þar sem fram komu áherslur hans í þessum málaflokki. Þórólfur Þórlindsson, ræddi um stöðuna í tóbaksvörnum þar sem m.a. kom fram að nú þurfi að leggja áherslu á forvarnastarf í framhaldsskólunum. Síðan gerði Guðný Árný Guðmundsdóttir grein fyrir ,,SmokeFreeAward" samkeppninni og öllum tilnefningum sem bárust. Pétri Heimissyni afhent viðurkenning.Samkeppnin er hluti af evrópsku samstarfsverkefni reyksíma og Reyksíminn og Lýðheilsustöð óskuðu eftir tilnefningum um heilbrigðisstarfsmann, eða hóp starfsmanna, sem með baráttuvilja, framsýni eða hugrekki höfðu lagt sitt af mörkum í tóbaksvörnum eða tóbaksmeðferð og um einstakling sem að þessu málefni hefur starfað á opinberum vettvangi. Þeir sem hlytu viðurkenningu yrðu síðan fulltrúar Íslands í Evrópukeppninni „SmokeFreeAward 2008“ í flokki baráttumanna og heilbrigðisstarfsmanna. Til viðbótar var ákveðið að veita, án tilnefningar, viðurkenningu verslunarmanni sem þarna hefur sérstaklega lagt hönd á plóg.Jóhannes Jónsson í Bónus tekur við viðurkenningu

Í dómnefnd sátu tveir fulltrúar frá Lýðheilsustöð, Viðar Jensson og Bára Sigurjónsdóttir, tveir frá Reyksímanum, Guðrún Árný Guðmundsdóttir og Dagbjört Bjarnadóttir og einn óháður aðili, Sigrún Dómnendin: Guðrún Árný, Sigrún, Dagbjört og Bára. Viðar var með Reyklausan bekk í KaupmannahöfnStefánsdóttir, dagskrárstjóri, rásar 1 og 2 hjá RÚV. Heilbrigðisráðherra afhenti síðan heiðursmönnunum þremur viðurkenningu fyrir að hafa skarað fram úr í tóbaksvörnum og tóbaksmeðferð á Íslandi. Það var svo heilbrigðisráðherra sem veitti baráttumönnunum viðurkenninguna, listaverk eftir listakonuna Æju.

Þátttakendur í tóbaksvörnum á Íslandi

Kristín Hulda Guðmundsdóttir, markaðsstjóri frá Samtökum verslunarinnar, sagði í erindi sínu að flestir verslunareigendur vilji geta haft tóbak, þessa löglegu söluvöru, á boðstólunum en mannekla hefur gert þeim erfitt að fara að lögum um aldur starfsfólks sem má selja tóbak. Þeir leggja því til að komið verði upp sérstökum tóbakssjálfssölum.

Lilja Dögg Jónsdóttir, nemi í Kvennaskólanum í Reykjavík, birti sýn framhaldsskólanema á tóbaksvarnir á sérlega skeleggan hátt og að lokum fór Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar yfir þær reglur gilda um eftirlitshlutverk stofnunarinnar.

Fundarstjóri málþingsins var Bára Sigurjónsdóttir og í upphafsorðum hennar kom m.a. fram að Lýðheilsustöð hefði minnt alla tóbakssöluhafa á landinu á átak sem stöðin var með í samstarfi við helstu verslanakeðjurnar fyrir tveimur árum um að ungt fólk, sem ekki hefur aldur til hvorki seldi né keypti tóbak og að allt efni til að nota í sams konar forvarnastarf í ár væri aðgengilegt á vefsíðu Lýðheilsustöðvar.

Um verðlaunahafana

Viðurkenning sem baráttumaður sem hefur unnið sérstaklega að tóbaksvörnum á opinberum vettvangi á Íslandi:

Þorvarður Örnólfsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur. Þorvarður Örnólfsson. smella á mynd til að stækka.
Úr umsögn með tilnefningu:

Árið 1974 sýndu rannsóknir að annar hver 16 ára unglingur á Íslandi reykti. Í kjölfar umfangsmikils fræðslustarfs Krabbameinsfélagsins í skólum, undir stjórn Þorvarðar, drógust reykingar ungs fólks verulega saman á tiltölulega skömmum tíma. Fræðslan var sambland af umræðum um félagslega þætti og heilsufarslegar afleiðingar reykinga. Reynslan hefur sýnt að sambland af hvoru tveggja gefur bestan árangur til lengdar.

Viðurkenning til heilbrigðisstarfsmanns sem með baráttuvilja, framsýni eða hugrekki hefur lagt sitt af mörkum í tóbaksvörnum eða tóbaksmeðferð:

Pétur Heimisson, heilsugæslulæknir hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands, Egilsstöðum.Pétur Heimisson. Smella á mynd til að stækka.
Úr umsögn með tilnefningu:

Pétur hefur um margra ára skeið starfað ötullega að tóbaksvörnum, bæði í starfi sínu sem læknir og einnig sem einstaklingur á félagslegum vettvangi. Hann hefur sótt sér þekkingu innanlands og utan og miðlað henni með ýmsum hætti. Pétur var formaður tóbaksvarnaráðs á árunum 2004-2007.

 

Ákveðið var að veita jafnframt viðurkenningu, án tilnefningar, verslunarmanni sem stuðlað hefur að tóbaksvörnum:

Jóhannes Jónsson í Bónus.Jóhannes Jónsson

Umsögn um Jóhannes:

Frá upphafi verslunarreksturs síns, árið 1989, hafði Jóhannes það sem áhersluatriði að ,,selja aldrei óþverra í sínum verslunum” og þar með seldi hann ekki tóbak. Í verslunum Bónus er með áberandi hætti bent á að tóbak sé þar ekki selt. Með þessari ákvörðun hefur Jóhannes lagt sitt af mörkum til virkra tóbaksvarna á Íslandi.

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica