Tóbakslausi dagurinn 2008 - Tóbakslaus framtíð
Lýðheilsustöð býður til málþings á Grand hóteli föstudaginn 30. maí kl. 8:15-10:00. Á þinginu mun heilbrigðisráðherra afhenda þeim viðurkenningu sem þykja hafa skarað fram úr í tóbaksvörnum og tóbaksmeðferð á Íslandi.Alþjóðlegur tóbakslaus dagur er 31. maí ár hvert. Þema dagsins í ár er ,,tóbakslaus framtíð” og er áherslan þar á unga fólkið okkar. Dagskrá málþingsins snýst því að talsverðu leyti um ungt fólk og tóbak.
Skráning: www.lydheilsustod.is/skraning
Dagskrá
Ávarp heilbrigðisráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson
Staða tóbaksvarna á Íslandi
Þórólfur Þórlindsson
Heilbrigðisstarfsfólk og tóbaksmeðferð
Guðrún Árný Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Reyksímans
Afhending viðurkenninga
Guðlaugur Þór Þórðarson
Hlé -Morgunverðarhlaðborð
Dagskrá eftir hlé:
Kristín Hulda Guðmundsdóttir, markaðsstjóri frá Samtökum verslunarinnar
Lilja Dögg Jónsdóttir, nemi í Kvennaskólanum í Reykjavík
Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
Fundarstjóri: Bára Sigurjónsdóttir
,,SmokeFreeAward”
Viðurkenning verður í fyrsta sinn afhent þeim sem með baráttuvilja, framsýni eða hugrekki hafa lagt sitt af mörkum í tóbaksvörnum á Íslandi eða tóbaksmeðferð. Þetta er hluti af evrópsku samstarfsverkefni reyksíma og þeir sem hljóta viðurkenningu munu verða fulltrúar Íslands í Evrópukeppninni „SmokeFreeAward 2008“ í flokki baráttumanna og heilbrigðisstarfsmanna.
