Rannsókn um reykingavenjur fólks á Íslandi
Í þessari rannsókn var leitast við að skoða reykingavenjur fólks og hvað einkenndi þá sem tekist hefur að hætta að reykja.
Stór hluti (66%) reykingarfólks hafði reynt að hætta að reykja á undanförnum 12 mánuðum þannig að stórt hlutfall af þeim sem reyktu vildu hætta. En þegar spurt var sérstaklega voru mun færri tilbúnir til að hætta að reykja í næsta mánuði og meira en helmingur reykingarmannanna hafði ekki áhuga á að hætta á næstu 6 mánuðum eða var alls ekki að íhuga að hætta að reykja.
Notkun reykleysislyfja á Íslandi var borin saman við notkun á öðrum Norðurlöndum. Í ljós kom að á Íslandi, eins og hjá nágrannaþjóðum, okkar hafði neysla nikótínlyfja aukist töluvert síðustu ár, en dregið hefur úr notkun Zybans á Íslandi en sú notkun hefur verið nokkuð stöðug á hinum löndunum. Heildareyðsla til kaupa á reykleysislyfjum, og þá sérstaklega nikótínlyfjum, á hvern íbúa var mun meiri á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum. Aukning sem hefur orðið á notkun nikótínlyfja á Íslandi undanfarin ár er ekki í samræmi við þróun í tíðni reykinga, en sú þróun hefur verið nokkuð stöðug.
