Tíðni reykinga árið 2007
Á mynd 1 má sjá að tíðni daglegra reykinga hjá aldurshópnum 15 til 89 ára er 19% þriðja árið í röð.

Mynd 2 sýnir að talsverður munur er á reykingum eftir menntun fólks. Eftir því sem fólk er meira menntað því minni líkur eru á að fólk reyki. Þannig reykja 10% þeirra sem hafa háskólamenntun á móti um 27% þeirra sem hafa grunnskólapróf ásamt viðbótarmenntun. Þeir sem hafa framhaldsskólapróf eru líklegri til að reykja daglega (10%) en þeir sem hafa háskólapróf en síður líklegir til að reykja en þeir sem hafa grunnskólapróf.
Mynd 3 gefur til kynna að minnkandi tíðni reykinga hefur átt sér stað í öllum aldurshópum nema meðal þeirra allra elstu (þar eru þátttakendur mjög fáir og því er munurinn þar ekki afgerandi).
Skýrsluna Umfang reykinga - samantekt 2007 má sækja í heild sinni á vef Lýðheilsustöðvar. Þar eru ítarlegri niðurstöður þar sem skoðað er m.a. hlutfall fólks sem reykir sjaldnar en daglega og hlutfall þeirra sem eru hættir að reykja. Niðurstöður eru þar einnig greindar meira eftir aldri og kyni en gert er hér að ofan.
Frekari upplýsingar fást hjá Lýðheilsustöð.


