Almenn ánægja með reyklaus veitingahús - niðurstaða könnunar
Veitinga- og skemmtistaðir á Íslandi hafa verið reyklausir frá því breytingar á tóbaksvarnalögum tóku gildi 1. júní 2007. Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar, sem gerð var sl. haust, á viðhorfi fólks til þessara breytinga. Almennt sýna niðurstöðurnar að fólk er ánægt og finnst betra að koma á þessa staði eftir breytingu þar sem andrúmsloftið hefur batnað svo mikið – og þar af leiðandi einnig vinnuaðstæður fólks á þessum stöðum.Það var 2. júní árið 2006 sem samþykkt var á Alþingi að allir veitinga-og skemmtistaðir yrðu reyklausir frá og með 1. júní 2007. Í raun var verið að fella úr gildi undanþágu, sem veitinga-og skemmtistaðir höfðu haft, frá 9. gr. tóbaksvarnalaga þar sem segir að reykingar í þjónusturýmum fyrirtækja og stofnana séu bannaðar. Meginmarkmið með lagabreytingunni var vinnuvernd starfsmanna, með vísan til gildandi vinnuverndarlaga og tóbaksvarnalaga.
Til að kanna viðhorf landsmanna til breytinganna fékk Lýðheilsustöð Capacent Gallup til að gera símakönnun dagana 14. til 26. september 2007. Helstu niðurstöður hennar eru kynntar hér nú en þær byggja á svörum 796 þátttakenda á aldrinum 18-75 ára. Endanlegt úrtak var 1292 manns sem valið var tilviljunarkennt úr þjóðskrá. Svarhlutfall var því 61,6%.
Helstu niðurstöður úr könnuninni september 2007
Mynd 1. Viðhorf almennings til þess að allir veitinga- og skemmtistaðir séu reyklausir.
Eins og sést á mynd 1 voru 72% þeirra sem tóku þátt í könnuninni frekar eða mjög hlynntir því að allir veitinga- og skemmtistaðir væru reyklausir. Við bætast 11% sem voru hvorki hlynntir né andvígir því að allir veitinga- og skemmtistaðir væru reyklausir. Því voru það einungis 17% sem voru frekar eða mög andvígir því að allir veitinga- og skemmtistaðir væru reyklausir.
Þetta eru svipaðar niðurstöður og þegar spurt var að því sama áður en lögin tóku gildi.
Ánægja á kaffihúsum, veitingahúsum, börum og skemmtistöðum
Mynd 2. Hlutfall þeirra sem segja ferðir sínar á veitingastaði, kaffihús og bari og skemmtistaði ánægjulegri eða jafnánægjulegar eftir að lögin tók gildi þann 1. júní 2007.
Myndin sýnir að af þeim sem höfðu farið á veitingahús eftir að lögin tóku gildi sögðu um 95% að síðustu ferðir hefðu verið jafn ánægjulegar eða ánægjulegri en fyrr.
Einnig má sjá að, af þeim sem höfðu farið á kaffihús eftir að lögin tóku gildi , sögðu rúm 90% að síðustu ferðir hefðu verið jafn ánægjulegar eða ánægjulegri en áður.
Að lokum sýnir mynd 2 að, af þeim sem höfðu farið á bari eða skemmtistaði eftir að lögin tóku gildi , sögðu rúm 86% að síðustu ferðir hefðu verið jafn ánægjulegar eða ánægjulegri.
Þetta eru svipaðar niðurstöður og fengust þegar spurt var að þessu sama áður en lögin tóku gildi en sú könnun var lögð fyrir í 21. mars til 1. apríl 2007.
Vinnuskilyrðin mun betri
Mynd 3. Mat á gæðum andrúmsloftsins á veitingastöðum, kaffihúsum og börum og skemmtistöðum fyrir og eftir að lögin tóku gildi þann 1. júní 2007.
Meðaleinkunn á skalanum 0-10.
Myndin sýnir að alls staðar batnar andrúmsloftið frá því sem áður var. Mest á börum og skemmtistöðum. Þetta þýðir að vinnuskilyrði á þessum stöðum hafa batnað. Reynslan frá öðrum löndum hefur sýnt hið sama.
Óhætt er því að segja að lagabreytingin njóti víðtæks stuðnings meðal fólksins í landinu.
