Reyklaus bekkur - tveir bekkir vinna vandaða bakpoka
Bekkirnir sem unnu eru:
8. KAM Grunnskólanum í Borgarnesi
7. KHE Vatnsendaskóla, Kópavogi
Nemendur og kennari þessara bekkja hljóta ofangreinda vinninga og óskum við þeim til hamingju með að hafa verið dregnir út.
Annar útráttur í mars
2. útdráttur verður 26. mars en þá verða dregnir út nokkrir bekkir sem fá geisladiska í verðlaun.
Til að eiga möguleika á að vinna til fyrstu verðlauna verður bekkurinn að senda inn áhugavert efni tengt tóbaksvörnum. Hvetjum við þá sem ætla að skila inn verkefni að fara að huga að undirbúningi og skipulagningu þess. Lokaskil á verkefnum er fimmtudaginn 30. apríl.
Undirritaðir samningar
Við viljum hvetja alla sem ekki hafa sent inn undirritaðan samning til að gera það sem fyrst.
Baráttukveðjur til reyklausra bekkja!
