Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Ekki segja sííísss! - Munntóbaksleikur á vefnum

17.10.2007

Munntóbaksleikur, forsíða. Smella á mynd til að stækka. Munntóbaksnotkun fer vaxandi á Íslandi þótt bannað hafa verið að flytja munntóbak inn frá árinu 1997. ,,Munntóbaksleiknum" Ekki segja sííísss! er ætlað að vekja athygli ungs fólks - og annarra - á áhrifum munntóbaksnotkunar og er það gert með því að fá fólk til að taka þátt í leik á vefnum.

Vefleikur um munntóbaksnotkun var formlega opnaður í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í dag. Fundarstjóri var Líney Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ, en Ólafur Rafnsson, formaður Íþróttasambands Íslands, opnaði leikinn formlega. Við það tækifæri sagði hann m.a. að með því að taka þátt í þessu verkefni Lýðheilsustöðvar væri ÍSÍ að hefja átak gegn munntóbaksnotkun á meðal íþróttafólks. Hann sagðist líta á munntóbaksnotkunina sem tískubylgju sem kveða þyrfti að niður.
Þórólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar flutti stutt ávarp þar sem hann þakkaði m.a. íþróttahreyfingunni fyrir þeirra þátt í að draga úr reykingum á Íslandi. Hann nefndi að svo virtist sem munntóbaksnotkun meðal íþróttafólks væri nokkuð mikil kannski vegna þess hversu strangt hefði verið tekið á reykingum á meðal þess. Tölur yfir munntóbaksnotkun sýna að heldur færri einstaklingar innan Helga Margrét og Viðar við formlega opnun leiksins. Smella á myndina til að stækka. íþróttahreyfingarinar, í 9. og 10. bekk grunnskóla, nota munntóbak heldur en þeir sem eru utan hennar. Dæmið snýst svo við þegar komið er á framhaldsskólaaldurinn því þá eru fleiri innnan íþróttahreyfingarinnar sem nota munntóbak heldur en þeir sem eru utan hennar. Viðar Jensson, verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð, hafði umsjón með gerð leiksins og hann kynnti notkun hans um leið og fyrsti formlegi notandinn, Helga Margrét, skráði sig inn.

 Líney Rut Halldórsdóttir  Ólafur Rafnsson  Þórólfur Þórlindsson
 Líney Rut framkvæmdastjóri ÍSÍ. Smella á mynd til að stækka  Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ. Smella á mynd til að stækka.  Þórólfur Þórlindsson forstjóri Lýðheilsustöðvar. Smella á mynd til að stækka.


Hvers vegna ,,Munntóbaksleikur”?

Munntóbaksleikurinn - smella á mynd til að opna leikinnÁ Íslandi er með lögum bannað að flytja inn, framleiða og selja fínkornótt neftóbak og allt munntóbak. Lögin tóku gildi 1. febrúar 1997 og voru sett til að bregðast við tilskipun Evrópusambandsins sem gerði aðildarríkjunum skylt að banna munntóbak. Þrátt fyrir bannið hér Íslandi er talið að nú noti um 3700 manns munntóbak daglega og ýmislegt bendir til þess að sá hópur fari stækkandi.

Til að bregðast við þessu er að fara af stað verkefni sem ætlað er að vekja athygli ungs fólks á áhrifum munntóbaksneyslu. Þetta er m.a. gert með ,,munntóbaksleik” sem aðgangur er að á netinu. Í stýrihópi um verkefnið áttu sæti, auk Viðars Jenssonar, Magnús Björnsson, tannlæknir, Guðrún Guðmundsdóttir, forvarnafulltrúi Flensborgarskóla, Eyjólfur Þorkelsson, læknanemi og Andri Stefánsson, fræðslufulltrúi ÍSÍ, en síðar tók Örvar Ólafsson, ÍSÍ, við hans sæti í hópnum.

,,Munntóbaksleikurinn” - www.lydheilsustod.is/munntobak

Um leið og farið er í leikinn (sem m.a. sýnir að munnurinn/tennurnar verða ekki mjög aðlaðandi við munntóbaksnotkun) er miðlað fróðleik um munntóbak, ánetjun þess og áhrif. Fólk getur sagt öðrum frá reynslu sinni af notkun munntóbaks, með því að smella á ,,tjáðu þig" hnapp og fólk getur valið hvort það vilji að þessar reynslusögur birtist á síðunni eða ekki. Einnig eru sýndar góðar leiðir til að hætta notkun munntóbaksins – sem reyndar er líka hægt að nýta sér við að hætta að reykja.
Leikinn og fræðsluefnið geta þjálfarar, kennarar, forvarnafulltrúar, tómstundafulltrúar, hjúkrunarfræðingar og aðrir nýtt sér til að ræða um munntóbaksnotkun við ungt fólk.
Tveimur gerðum af veggspjöldum, sem vekja athygli á afleiðingum munntóbaksneyslu og munntóbaksleiknum, verður dreift um allt land og þeir sem vilja fá eintak geta pantað það hér. Munntóbaksundirsíða, smella á mynd til að stækka.

Tóbak er ávanabindandi, hvort sem það er reykt eða ekki

Oft er sagt að munntóbak skaði heilsuna minna en reyktóbak. Slíkur samanburður er ákaflega villandi því fátt er jafn hrikalega heilsuspillandi og reykingar. Eðlilegra er að bera hættuna af munntóbaksneyslu saman við það að neyta alls ekki tóbaks. Magn nikótíns í munntóbaki er oftast mörgum sinnum meira en í reyktóbaki og verða neytendur því oft mjög háðir því. Þeir sem eru háðir munntóbaki eru, samkvæmt sænskum rannsóknum, með í vörinni að meðaltali 13 til 15 tíma á dag og dæmi eru um að menn setji í vörina áður en þeir leggjast til svefns. Nær helmingur munntóbaksneytenda vill hætta neyslunni og þriðjungur vill fá aðstoð til þess. Takmarkaðar vísindalegar rannsóknir eru til um það hvernig losna eigi undan munntóbaksfíkninni en í stórum dráttum gilda þar sömu lögmál og um reykingar.


Frekari aðstoð við að hætta tóbaksnotkun

Á gagnvirku heimasíðunni www.reyklaus.is er hægt að fá ókeypis aðstoð við að hætta munntóbaksnotkun. Þar er hægt að taka próf sem sýnir hvernig tóbaksneytandi viðkomandi er og hann fær í kjölfarið ábendingar um hvað hann þurfi að gera til að hætta. Skráðir notendur fá stuðningspóst og á síðunni er vinsæl spjallrás þar sem fólk segir frá reynslu sinni af að reyna að hætta að reykja – sem virkar líka sem stuðningur og hvatning fyrir aðra í sömu sporum. Einnig er hægt að fá ókeypis símaráðgjöf hjá hjúkrunarfræðingunum sem svara Reyksímanum 800 6030.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica