Reyklaus bekkur 2007-2008 að hefjast
Reyklaus bekkur-verkefnið er nú að fara af stað, 9. árið í röð, og allir 7. og 8. bekkir í grunnskólum landsins geta skráð sig til leiks.Allir bekkir sem ætla að taka þátt þurfa að skrá sig fyrir 9. nóvember.
Þessa dagana er verið að dreifa veggspjöldum og upplýsingum um það hvernig 7. og 8. bekkir í grunnskólum landsins geta tekið þátt. Eins og fyrr getur einn reyklaus bekkur hlotið í verðlaun utanlandsferð fyrir allan bekkinn í vor. Einnig er í vinning iPod nano auk ýmissa annarra verðlauna. Það er því til mikils er að vinna að allir í bekknum taki sig saman og verði reyklausir skólaárið 2007-2008.
Allar frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Reyklaus bekkur - verkefnisins: www.lydheilsustod.is/reyklausbekkur
