Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

reyklaus.is - nýtt tæki í baráttunni við tóbaksfíknina

4.9.2007

Heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, opnaði formlega í dag gagnvirku heimasíðuna reyklaus.is. Heimasíðan er nýtt ,,tæki" sem þeir geta nýtt sér sem vilja hætta að reykja og er aðstoðin, sem hægt er að fá á síðunni, notandanum að kostnaðarlausu. Smella á mynd til að opna heimasíðuna

Formleg opnun

Formleg opnun síðunnar átti sér stað á Lýðheilsustöð að viðstöddu fjölmenni en þetta er fyrsta heimsókn nýs heilbrigðisráðherra, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, á Lýðheilsustöð og fyrsta opinbera embættisverkið sem settur forstjóri stöðvarinnar, Þórólfur Þórlindsson, innir af hendi. Þess má geta að Guðlaugur er þriðji heilbrigðisráðherrann sem heimsækir Lýðheilsustöð frá stofnun hennar í júlí 2003.

        

   

 Smella á mynd til að stækka
Ráðherra ásamt Þórólfi Þórlindssyni, spjallar við Ásgeir Helgason, Guðrúnu Árnýju Guðmundsdóttur og Dagbjörtu Bjarnadóttur.

 smella á mynd til að stækka

Ráðherra opnar reyklaus.is formlega.

 Reyksímakonurnar  Smella á mynd til að stækka
 Hjúkrunarfræðingarnir Guðrún Árný Guðmundsdóttir og Dagbjört Bjarnadóttir eru umsjónarkonur reyklaus.is en þær starfa hjá Reyklausa símanum.  Fullt var út úr dyrum á fundarsal Lýðheilsustöðvar við opnun reyklaus.is


 

Aðstoð til reykleysis

Á undanförnum árum hafa Íslendingar staðið sig vel í tóbaksvörnum sem leitt hefur til þess  að einungis 19% landsmanna á aldrinum 15-89 ára reykir daglega, sem er með því minnsta sem þekkist í Evrópu. Sá þáttur sem hinsvegar hefur ekki verið sinnt sem skyldi á Íslandi er aðstoð við fólk sem vill hætta tóbaksnotkun. Einn liður í að gera þar úrbætur er að setja á fót gagnvirka heimasíðu, þar sem fólk getur leitað sér aðstoðar við að hætta að reykja. Tidni_daglegra_reykinga_a_Islandi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á Íslandi reykja um:
12% nemenda í 10. bekk og 13% barnshafandi kvenna.

             

Reyklaus.is

Gagnvirka heimasíðan veitir ókeypis einstaklingsmiðaða aðstoð sem hver og einn getur nýtt sér eftir hentugleika.  Þeir sem skrá sig sem notendur fá send stuðningsskilaboð, sem miðast við þeirra eigin þarfir, fá aðgang að dagbók og gestabók og síðast en ekki síst er spjallsvæði á síðunni þar sem hægt er að deila reynslu sinni og baráttu með öðrum sem eru í sömu stöðu. Smella á mynd til að stækka

 

Á reyklaus.is er hægt að taka ýmis próf sem geta aukið skilning viðkomandi á reykingavenjum sínum – og þá jafnframt hvernig hann getur losað sig undan þeim – og bent er á leiðir til að hætta tóbaksnotkun. 

Notendur fá faglega ráðgjöf, sendi þeir spurningar eða biðja um aðstoð á: reyklaus@reyklaus.is

Fyrirspurnunum svara hjúkrunarfræðingar sem starfa við

Reyksímann - ráðgjöf í reykbindindi 800 6030 en þangað er einnig hægt að hringja og fá ókeypis aðstoð til reykleysis.

    

   
 Talar_vid_reyksimann  Talar_vid_reyksimann


Reyksíminn heldur utan um reyklaus.is fyrir Lýðheilsustöð.  

Forsagan

Steini,_stressadi_1Gagnvirki vefurinn reyklaus.is er upphaflega ættaður frá Svíþjóð. Sænski læknirinn Hans Giljam og Preventive Media Sweden AB (PMAB) gáfu út geisladisk með reykleysisnámskeiðinu Dr. Smoke-Free. Sænska krabbameinsfélagið útvíkkaði þetta efni og skipulagði netnámskeiðið pepp. Árið 2004 fengu Norðmenn leyfi Svía til að þýða og staðfæra síðuna og norska krabbameinsfélagið útbjó þá norsku útgáfuna Opptur (www.slutta.no), meðal annars í samvinnu við félags- og heilbrigðismálaráðuneytið í Noregi. Norska Opptur-síðan var prófuð í mörgum stórfyrirtækjum á árunum 2004-2005. Reynslan var svo góð að norska krabbameinsfélagið og félags- og heilbrigðismálaráðuneytið í Noregi fóru fram á að Opptur-síðan yrði endurbætt enn frekar, þannig að hægt væri að bjóða öllum netnotendum að nýta sér aðstoð hennar ókeypis og meta í kjölfarið gagnsemina.Steini,_stressadi

 

Árið 2006 fékk Lýðheilsustöð leyfi til að þýða gagnvirku, norsku útgáfuna á íslensku og setja upp síðuna reyklaus.is. Lýðheilsustöð vonast til að reyklaus.is geti verið úrræði sem gagnist öllum sem áhuga hafa á að hætta tóbaksnotkun, óháð búsetu eða efnahag. Einnig að þeir sem veita reykleysisaðstoð, heilsugæslan eða aðrir, vísi skjólstæðingum sínum á síðuna. sparnadur

Á síðunni sést jafnóðum hversu margir notendur hennar eru, hvernig þeim gengur og hversu miklir fjármunir hafi sparast.

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica