Reykleysi á veitinga- og skemmtistöðum vel tekið
Reykingabanninu á veitingarhúsum og skemmtistöðum hefur verið afar vel tekið hér á landi. Svo virðist sem landinn hafi verið fljótur að laga sig að breyttum aðstæðum. Reynslan frá öðrum löndum hefur sýnt hið sama í gegnum tíðina. Óhætt er að segja að lagabreytingarnar njóta víðtæks stuðnings meðal almennings, þrátt fyrir að vart yrði ákveðins kvíða um að draga myndi úr viðskiptum.Vinnueftirlit ríkisins fylgist með framkvæmdinni hér á landi og heilbrigðiseftirlitin á viðkomandi stöðum taka við ábendingum og kvörtunum ef banninu er ekki framfylgt. Samkvæmt heimildum frá þessum embættum hafa afar fáar eða jafnvel engar kvartanir borist vegna framkvæmdar lagasetningarinnar á höfuðborgarsvæðinu og einnig á landsbyggðinni. Má með sanni segja að þessar fréttir komi skemmtilega á óvart.
Gestir staðanna og veitingarmenn hafa talsvert haft samband við Lýðheilsustöð undanfarið til að spyrjast fyrir um nánari útfærslu á lögunum og er ekki annað að heyra en að almenn ánægja sé með þessa breytingu. Eins hafa ýmsir aðilar lýst yfir ánægju sinni opinberlega í fjölmiðlum, með það hve mikill munur það sé að heimsækja veitingarhúsin efitr að þau urðu reyklaus.
