Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Kynning á lögum um reyklausa veitinga- og skemmtistaði

15.5.2007

NM27451_skjaauglysingNú styttist í 1. júní 2007 en þá munu taka gildi breytingar á tóbaksvarnalögum. Þessar breytingr fela í sér að ekki má leyfa reykingar í þjónusturými veitinga- og skemmtistaða á Íslandi. Staðurinn skal vera alveg reyklaus og ekki má skipta í reyk og reyklaus svæði.

reykl_veit_baekl_myndVegna breytinganna stendurLýðheilsustöð fyrir kynningu á lögunum um þessar mundir. Stöðin hefur, í samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar, látið útbúa kynningarpakka fyrir veitingamenn. Í honum er að finna ýmist efni sem þeir geta nýtt sér í aðdraganda laganna auk kynningar á lögunum. Kynningarpakkinn hefur verið sendur bordspjaldveitingamönnum.

NM27451_skjaauglysing01Lýðheilsustöð hefur einnig látið útbúa efni til að kynna lögin fyrir landsmönnum öllum. Það kynningarefni mun birtast fram til 1. júní í formi auglýsinga í sjónvarpi, blöðum og á netinu.

Auk þessa hefur verið útbúin sérstök undirsíða á heimasíðu Lýðheilsustöðvar þar sem að fólk getur fundið allar helstu upplýsingar um lögin.

Þar er að finna sérstakt svæði fyrir veitingamenn, svör við algengum spurningum, upplýsingar um reynslu annarra landa og margt fleira.

Reyklaus veitingahús - upplýsingasíða

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica