Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Þeim fjölgar sem vilja reyklausa veitinga- og skemmtistaði

27.4.2007

Þann 1. júní 2007 taka gildi breytingar á tóbaksvarnalögum sem fela í sér að reykingar verða ekki lengur leyfðar í þjónusturými veitinga- og skemmtistaða. Lýðheilsustöð kannaði viðhorf landsmanna til þessarar lagasetningar og Vinnueftirlitið viðhorf og heilsu starfsmanna á þessum stöðum.

Viðhorf landsmanna var kannað vorið 2005 og vorið 2007. Lýðheilsustöð fékk Capacent Gallup til að gera kannanirnar. Í báðum könnunum var svarhlutfallið rúmlega 60%.

Helstu niðurstöður

Flestir virðast vera hlynntir því að veitinga- og skemmtistaðir verði reyklausir. Nokkur þróun hefur orðið í jákvæða átt frá árinu 2005 til 2007. Árið 2005 sögðust rúmlega 60% aðspurðra vera frekar eða mjög hlynntir því að allir veitinga- og skemmtistaðir yrðu reyklausir en í mars 2007 voru um 75% aðspurðra frekar eða mjög hlynntir því (mynd 1).

reyklaus_veitingahus_vidhorf__m1

Meirihluti vill reykleysi

Þegar hópnum er skipt í þá sem reykja og þá sem reykja ekki kemur í ljós nokkur munur. Rúmlega 80% þeirra sem reykja ekki og um 50% þeirra sem reykja eru mjög eða frekar hlynnt því að allir veitinga- og skemmtistaðir verði reyklausir. Rúmlega 40% þeirra sem reykja eru mjög eða frekar andvígir því að allir veitinga- og skemmtistaðir verði reyklausir (mynd 2).

reyklaus_veitingahus_vidhorf__m2

Flestir myndu fara jafn oft eða oftar á reyklausa staði

Skoðað var hvort tíðustu gestir veitinga- og skemmtistaða (þ.e. þeir sem fara þangað oftar en einu sinni í mánuði) hyggist fara oftar, jafn oft eða sjaldnar á þessa staði. Í ljós kom að flestir segjast myndu fara jafn oft eða oftar á veitingastaði, kaffihús og bari eða skemmtistaði ef þeir væru reyklausir. Mun fleiri segja að þeir myndu fara oftar á staðina en sjaldnar ef þeir væru reyklausir (mynd 3). Ekki voru tengsl á milli þess að reykja og reykja ekki og þess að fara, einu sinni í mánuði eða oftar, á veitingahús, kaffihús og bari eða skemmtistaði.

 reyklaus_veitingahus_vidhorf__m3 

 

Þegar borin voru saman svör fólks, fyrir árin 2005 og 2007, við spurningunni um hversu oft það ætlaði að sækja veitinga- og skemmtistaði kom í ljós að bæði árin var mikill meirihluti sem ætlaði að fara jafn oft eða oftar á staðina ef þeir væru reyklausir (mynd 4). Svo virðist sem fleiri ætli árið 2007 að fara jafn oft eða oftar eftir að staðirnir verða reyklausir heldur en árið 2005. Sá munur var þó ekki tölfræðilega marktækur.

 reyklaus_veitingahus_vidhorf__m4 

Langflestir telja ferðir sínar verða ánægjulegri eftir reykleysi

Auk þess að skoða viðhorf og fyrirhugaða mætingu á staðina var fólk spurt hversu ánægjulegt það teldi að yrði að fara á veitinga- og skemmtistaði eftir að þeir yrðu reyklausir. Næstum allir sem reykja ekki og um 70% þeirra sem reykja telja að ferðir þeirra á veitingastaði verði jafn ánægjulegar eða ánægjulegri eftir að veitingastaðir verða reyklausir. Rúmlega 30% þeirra sem reykja telja að ferðirnar verði minna ánægjulegar (mynd 5).

Hafa þarf í huga að fjöldi þeirra sem reykir er mun minni en þeirra sem reykir ekki og því eru á heildina litið rúm 90% aðspurðra þeirrar skoðunar að ferðir þeirra á veitingastaði verði jafn ánægjulegar eða ánægjulegri eftir að veitingastaðir verða reyklausir. Svipað á við um ferðir á kaffihús og bari eða skemmtistaði þó óánægja þeirra sem reykja sé heldur meiri fyrir þessa staði en veitingahús (myndir 6 og 7).

reyklaus_veitingahus_vidhorf__m5

 

 

reyklaus_veitingahus_vidhorf__m6

 

reyklaus_veitingahus_vidhorf__m7

 

 

 

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica