Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Tækifæri til að hafa áhrif á tóbaksvarnastefnu Evrópusambandsins

22.3.2007

European_comissionEvrópusambandið hefur sent frá sér drög að stefnu - s.k. „Green paper“- um tóbaksvarnir í Evrópusambandslöndunum. Áður en stefnan verður samþykkt gefst öllum, sem áhuga hafa, tækifæri til að gefa álit sitt á henni.

„Green Paper:Towards a Europe free from tobacco smoke: policy options at EU level“

Green paper, skýrsla. Smella á mynd til að lesa skjaliðStefnudrögin hafa verið gefin út í skýrsluformi og þar eru kynntar helstu áherslur í tóbaksvörnum í Evrópu til ársins 2010. Meðal annars eru þar að finna aðgerðir gegn óbeinum reykingum en þær eru taldar valda að minnsta kosti 79.000 þúsundum dauðsföllum á ári í þeim 25 löndum sem tilheyra Evrópusambandinu.

Frestur til 1. maí

Fram til 1. maí, 2007, gefst áhugafólki og hagsmunaaðilum tækifæri til að koma á framfæri við Evrópusambandið spurningum, athugasemdum og ábendingum um efni skjalsins. Þær skal senda með tölvupósti til:

sanco-smoke-free-consultation@ec.europa.eu

Hér er einnig hægt að nálgast skjalið í pdf formi: http://ec.europa.eu/health/ph_determinants/life_style/Tobacco/Documents/gp_smoke_en.pdf

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica