Vinningshafar í keppninni Frítt til Evrópu
Frítt til Evrópu fyrir reyklausa var keppni ætluð ungu fólki á aldrinum 15-20 ára og liður í að hvetja ungt fólk á þessum aldri til reykleysis. Þátttakendum var skipt í tvo hópa, annars vegar reyklausa og hins vegar þeir sem reyktu en vildu hætta.
-
Aðalvinningur í báðum flokkum var Evrópuferð að verðmæti 50.000 kr.
Nú hafa vinningshafar verið dregnir út og hlutu tvær stúlkur vinning, ein í hvorum flokki. Óskum við þeim til hamingju!
|
|
|
|---|---|
| Í hópi þeirra sem ekki reykja hlýtur Hrefna Erna Ólafsdóttir, Garðabæ Evrópuferð að verðmæti 50.000.- kr | Og í hópi þeirra sem hættu hlýtur Heiðrún Gréta Viktorsdóttir, Ísafirði Evrópuferð að verðmæti 50.000.- kr. |
-
Að auki voru vikulega verðlaunaðar áhugaverðar örsögur sem þátttakendur skrifuðu undir titlinum hvers vegna að velja reykleysi?
-
Þeir sem áttu örsögur sem voru valdar og birtar á heimasíðu Lýðheilsustöðvar hlutu 10.000 kr.- fataúttekt í vinning.
Þátttakan var mjög góð en um 4.000 krakkar tóku þátt og flest þeirra skrifuðu örsögu sem margar hverjar voru mjög skemmtilegar.Öllum þátttakendum er þakkað fyrir að taka þátt og sérstaklega er þakkað fyrir margar frumlegar og einlægar sögur, greinilegt að það eru margir upprennandi rithöfundar á þessum aldri!

