Aðstoð við þá sem vilja hætta að reykja
góð viðbót í hópi þeirra sem veita reykleysisaðstoð en það eru Lyf og heilsu-apótekin og ber að fagna þessu framtaki.Í apótekum Lyfja og heilsu um allt land er nú hægt að fá sérhæfða ráðgjöf við að hætta að reykja. Um er að ræða einkaviðtöl og ráðgjöf gegn vægu gjaldi - eða því sem svarar til sígarettupakka í hvert sinn. Eftirfylgni og stuðningur er veigamikill áhrifaþáttur í reykleysismeðferð, eins og rannsóknir hafa sýnt.
Ráðgjöfin á einnig við fyrir þá sem vilja hætta munntóbaksnotkun og minnka eða hætta notkun nikótínlyfja.
Ýmis aðstoð við að hætta að nota tóbak
Áður hafa ýmsir boðið aðstoð við að hætta að reykja og má lesa um þá sem Lýðheilsustöð hefur vitneskju um hér.
Benda má á sjálfshjálparbæklinginn Hættu fyrir lífið en hann er hægt að panta af heimasíðunni. 
Síðan er sérstök athygli vakin á Reyksímanum - Ráðgjöf í reykbindindi sími 800 6030 - sem er ókeypis símaþjónusta ætluð þeim sem vilja fá aðstoð við að hætta notkun tóbaks eða nikótínlyfja. Sérhæfðir ráðgjafar, hjúkrunarfræðingar, svara símanum alla virka daga milli kl. 17-19 auk þess sem hægt er að skilja eftir skilaboð á öðrum tímum.
Barnshafandi konum, sem vilja hætta að reykja, er boðin aðstoð á heilsugæslustöðvum, þar sem þær geta rætt við ljósmóður eða lækni um leiðir og úrræði. Nýverið kom út fræðslubæklingur á vegum Lýðheilsustöðvar og Miðstöðvar mæðraverndar Reykingar á meðgöngu sem hægt er að fá á öllum heilsusgæslustöðvum. Einnig má benda á fræðslubæklinginn Börn og óbeinar reykingar.
Nánari upplýsingar um aðstoð til reykleysis geta barnshafandi konur fengið með því að hringja í síma: 585 1400.
