Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Reyklaus bekkur - Tveir bekkir vinna vandaða bakpoka

1.2.2007

Nú hafa verið dregnir út tveir bekkir í samkeppninni Reyklaus bekkur og vinna allir nemendur þessara bekkja og kennarar Eastbak bakpoka.

Bekkirnir sem unnu eru:

7bakpokar. RK í Borgaskóla, Reykjavík

7. RE í Brekkubæjarskóla, Akranesi

Nemendur og kennari þessara bekkja hljóta ofangreinda vinninga og óskum við þeim til hamingju með að hafa verið dregnir út.

Annar útráttur í mars

2. útdráttur verður 21. mars en þá verða dregnir út nokkrir bekkir sem fá geisladiska í verðlaun.

Til að eiga möguleika á að vinna til fyrstu verðlauna verður bekkurinn að senda inn áhugavert efni tengt tóbaksvörnum. Hvetjum við þá sem ætla að skila inn verkefni að fara að huga að undirbúningi og skipulagningu þess. Lokaskil á verkefnum er fimmtudaginn 3. maí.

Undirritaðir samningar

Við viljum hvetja alla sem ekki hafa sent inn undirritaðan samning til að gera það en nú eiga flestir að vera búnir að fá hann undirritaðan til baka.

Að lokum viljum við segja frá því að ,,litla gjöfin" sem allir þátttakendur fá er komin í hús eins og sagt er. Vonandi verður hægt að senda hana til allra seinna í febrúar.

Baráttukveðjur til reyklausra bekkja!



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica