Farsælt nýtt ár!
Lýðheilsustöð sendir landsmönnum bestu óskir um gott og farsælt nýtt ár! 
Margir nota áramót sem tíma til að breyta einhverju í lífi sínu, s.s. til að huga betur að líkamlegri og andlegri heilsu. Margir ætla að minnka stressið, hreyfa sig meira, borða hollari mat og hætta að reykja. Lýðheilsustöð vonar að hún geti þarna orðið að liði og bendir í því sambandi á margt ágætis fræðsluefni sem hægt er að panta hjá stöðinni - eða einfaldlega lesa hér á síðunni.
Lýðheilsustöð hefur á undanförnum dögum birt auglýsingu í fjölmiðlum með hvatningunni ,,hættum að reykja saman" og er þá vísað til samstarfs stöðvarinnar og ,,reyksímans". Þar getur fólk sem vill hætta að reykja fengið persónulega ráðgjöf, endurgjaldslaust. Símaráðgjöfin er opin allan ársins hring og svarað í síma á milli kl. 17-19 - en næstu tvær vikur er opið til kl. 21.
Einnig hafa verið birtar aftur á sjónvarpsstöðvum ástralskar auglýsingar um áhrif tóbaksreykinga á heilsu fólks, sem fyrst voru sýndar árið 2001 og vöktu þá mikil viðbrögð. Auglýsingarnar voru hljóðsettar að nýju og í lok þeirra er vísað til þess að hægt sé að fá ókeypis aðstoð við að hætta í reyksímanum.
Ein góð ástæða til að nota árið 2007 til að hætta að reykja er að þann 1. júní verða allir veitinga- og skemmtistaðir í landinu reyklausir - sem m.a. gerir það að verkum að þá getur starfsfólk þessara staða loks andað léttar og um leið allir viðskiptavinir. En þetta gerir einnig það að verkum að enn fækkar þeim stöðum þar sem reykingamenn geta reykt innandyra - og því kannski ágætt að vera hætt-/ur áður en til þessa kemur.
Holla valið - auðvelda valið
Hvað varðar mataræðið þá hvetur Lýðheilsustöð landsmenn til að huga að áhrifum þess á heilsuna að borða hollan og fjölbreyttan mat alla daga ársins. Til að auðvelda fólki að velja hollan mat hefur Lýðheilsustöð
nýverið gefið út bæklinginn Ráðleggingar um mataræði þar sem m.a. koma fram 12 stutt heilsuskilaboð um fæðuval og svo frekari fræðsla um mat og mataræði. Einnig hefur stöðin gefið út veggspjald með fæðuhringnum þar sem á myndrænan hátt er sýnt hvernig æskilegast er að fæðan sé samsett á hverjum degi. Sneiðarnar sýna hvaða mat ætti að borða mest af og hvaða minnst. Hægt er að panta hvoru tveggja í gegnum heimasíðuna.
Hreyfum okkur í 30-60 mínútur á dag
Mikilvægi hreyfingar í daglegu lífi þyrfti öllum að vera ljóst en hvatt er til þess að fullorðnir hreyfi sig rösklega í minnst 30 mínútur á dag og börn minnst 60 mínútur. Hérna er átt við samanlagðan mínútufjölda af hreyfingu yfir daginn. Með því t.d. að leggja bílnum aðeins lengra frá vinnustaðnum - eða ganga til vinnu, ganga upp stiga í stað þess að taka lyftuna, fara í göngutúr í hádeginu, láta börnin ganga til og frá skóla í stað þess að aka þeim, þá er hægt að ná ráðlagðri hreyfingu á auðveldan máta. Að auki stunda margir skipulagða
hreyfingu s.s. íþróttir, á líkamsræktarstöðvum eða í sundi. Lýðheilsustöð hefur einnig gefið út s.k. hreyfihring en þar er á myndrænan hátt hvatt til hreyfingar og hægt er að panta slíkt veggspjald í gegnum heimasíðuna.
Hlúum að geðheilsunni
Regluleg hreyfing hefur ekki síður góð áhrif á andlega líðan - ekki síst í skammdeginu. En Lýðheilsustöð hefur einnig gefið út heilsuskilaboð fyrir geðheilsuna, þ.e. Geðorðin 10 sem landsmenn fengu flestir send að gjöf í formi seguls fyrir jólin 2005. Geðorðin 10 minna okkur á hvað við getum sjálf gert á hverjum degi til að okkur líði sem best. Geðorðin 10 hafa einnig verið gefin út í bæklingi og á korti. 
