Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Reyklausir veitingastaðir - undirbúningur hafinn

19.12.2006

Límmiði, Reyklaus staður frá 1. júní 2007. smella á mynd til að stækkaAllir veitinga- og skemmtistaðir á Íslandi verða reyklausir frá og með 1. júní nk. skv. lögum. Þegar er hafin vinna við að undirbúa rekstraraðila undir þessa breytingu, m.a. lét Lýðheilsustöð útbúa kynningarbækling um málið, í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar, og sendi nýverið til allra veitingahúsa á landinu.

Samþykktar hafa verið á Alþingi breytingar á tóbaksvarnalögum sem fela það í sér að veitinga- og skemmtistaðir mega ekki leyfa reykingar í þjónusturými sínu eftir 1. júní 2007. Samtök ferðaþjónustunnar og hagsmunasamtök starfsfólks í veitingarekstri eru meðal þeirra sem hvöttu til lagabreytingarinnar.

Hreint loft á veitingastöðum – fyrir gesti sem starfsfólk

Sem lið í að undirbúa jafnt rekstraraðila sem landsmenn undir það sem í vændum er lét Lýðheilsustöð, í samvinnu við Samtök ferðþjónustunnar, útbúa kynningarefni um málið. Nú öndum við léttar, bæklingur. smella á mynd til að lesa bæklinginn
Um er að ræða bækling þar sem skýrt er frá því helsta sem breytingin á tóbaksvarnalögunum felur í sér, fjallað örlítið um reynslu annarra þjóða af sams konar breytingum og leitast við að svara algengustu spurningum um málið.

Auk bæklingsins voru gefnir út tvenns konar límmiðar sem veitingamenn geta límt í glugga veitingastaðanna. Annars vegar er límmiði um að staðurinn sé reyklaus, hins vegar að hann verði reyklaus 1. júní 2007. Á árinu 2007 mun Lýðheilsustöð halda áfram með kynningarstarf í tengslum við lagabreytinguna, þannig að jafnt rekstraraðilar sem landsmenn allir fái sem bestar upplýsingar um þær breytingar sem verða á veitinga- og skemmtistöðum í kjölfarið. Limmidi,_reyklaus_stadur

Panta efni

Hægt er að panta bæklinginn og límmiðana í gegnum heimasíðuna.

Panta bækling

Panta límmiða



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica