Reykingar enn á niðurleið
Lýðheilsustöð fékk Capacent Gallup til að kanna umfang reykinga á Íslandi á árinu 2006. Kannanirnar fóru fram snemma árs, um mitt ár og í lok árs. Samantekt kannanna þriggja liggur nú fyrir og birtast niðurstöðurnar hér.
18,8% reykja daglega nú – en 30% árið 1991
Samvæmt samantekt Capacent Gallup er umfang reykinga á hægri en stöðugri niðurleið. Árið 2006 virðast 18,8% fólks á aldrinum 15-89 ára reykja daglega miðað við um 30% árið 1991 (sjá mynd 1).
Mynd 1: Þróun daglegra reykinga hjá 15-89 ára frá 1991-2006
Aðeins fleiri karlar reykja - Munurinn á milli kynjanna er sá að 21% karla reykja daglega miðað við 17% kvenna. Lítill og ómarktækur munur greinist á hlutfalli kvenna og karla sem reykja af og til (sjá mynd 2).
______________________________________________________________________________________
Mynd 2: Munur á reykingum milli kynja
Reykingar algengastar hjá fólki á þrítugsaldri - Eins og fyrri ár er töluverður munur á reykingum eftir aldri og nú sem fyrr eru reykingar algengastar hjá fólki á aldrinum 20-29 ára. Þar á eftir kemur aldurshópurinn 50-59 ára. Nú sem endranær eru reykingar einnig lang minnstar í elsta aldurshópnum (80-89 ára).
______________________________________________________________________________________
Mynd 3: Munur á reykingum eftir menntunarstigi
Meiri menntun – minni reykingar - Þegar tölur um umfang reykinga eru skoðaðar er einna athygliverðast að skoða mun á tíðni reykinga eftir menntun og tekjum. Þar kemur í ljós að háskólamenntað fólk reykir minnst allra (8,3%) en þeir reykja mest (29,5%) sem eru einungis með grunnskólamenntun og viðbótarmenntun sem er minni en stúdentspróf. Einnig vekur athygli að í hópi háskólamenntaðra eru líka lang flestir sem hafa aldrei reykt (57,7%) (sjá mynd 3).
______________________________________________________________________________________
Mynd 4: Munur á reykingum eftir tekjum
Reykingar minnka með hærri fjölskyldutekjum - Þegar bornar eru saman reykingar milli tekjuhópa kemur ekki fram eins augljós munur og á milli menntunarstigs. Reykingar minnka nokkuð eftir því sem fjölskyldutekjur hækka en munurinn er ekki eins afgerandi og þegar menntunin er skoðuð (sjá mynd 4).
Skýrslan í heild sinni
Frekari upplýsingar veitir
verkefnisstjóri tóbaksvarna




