Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Frítt til Evrópu - fyrir reyklausa

16.11.2006

Lýðheilsustöð hefur ýtt úr vör keppni fyrir reyklausa og er hún ætluð ungu fólki á aldrinum 15-20 ára. Allir sem skrá sig til leiks og eru á þessum aldri eiga þess kost að vinna utanlandsferð. Þátttakendum er skipt í tvo hópa, annars vegar eru reyklausir og hins vegar þeir sem reykja en vilja hætta. Veglegir vinningar eru í boði.

Aðalvinningur í báðum flokkum er Evrópuferð að verðmæti 50.000 kr. Dregið verður í lok janúar 2007. Að auki verða vikulega verðlaunaðar áhugaverðar örsögur undir titlinum hvers vegna að velja reykleysi?

Þátttökuskilyrði:Taka þátt í keppninni Frítt til Evrópu

  • að vera fædd/ur á árunum 1987-1992
  • að skrá sig fyrir 1. janúar 2007
  • að vera reyklaus í lok janúar 2007
  • að skrifa nokkur orð um ástæður þess að vilja vera reyklaus.

Þeir sem skrá sig í keppnina og sýna áhuga á að hætta að reykja er bent á að árangurinn gæti orðið betri ef þeir nýti sér aðstoð og þeim er því bent á nokkur úrræði. Eins sjá þeir með útreikningi hvað þeir myndu spara mikið á ári ef þeim tekst að hætta.

Í lok janúar 2007 verður aðalvinningurinn dreginn út: Evrópuferð fyrir reyklausa. Að auki eru verðlaunaðar vikulega örsögur sem skrifaðar eru undir heitinu: Hvers vegna að velja reykleysi?

Markmiðið með Frítt til Evrópu fyrir reyklausa er að fá ungt fólk til að hugleiða kosti þess að vera reyklaus.

Taka þátt í keppninni



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica