Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Hætt að reykja með aðstoð 6 til 7

12.10.2006

Margir nota haustið til að taka sig á og tileinka sér bættan lífstíl, t.d. að hætta að reykja. Sumum reynist lítið120stop mál að hætta að reykja, taka bara ákvörðunin og hætta - ekkert mál. Öðrum reynist það erfiðara og hafa jafnvel reynt margoft. Frá og með morgundeginum gefst tækifæri til að hætta um leið og nokkrir þekktir einstaklingar með aðstoð þáttarins 6 til 7 á Skjá Eiinum.

Á morgun ætlar sjónvarpsstöðin Skár Einn, í samvinnu við Valgeir Skagfjörð, að hvetja fólk til að stíga skrefið
og hætta að reykja með nokkrum þekktum eintaklingum. Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri SkjásEins,
Elísabet Jökulsdóttir, rithöfundur, og Snorri Sturluson, íþróttafréttamaður, hafa ákveðið að taka áskorun
6 til sjö og hætta að reykja. Þau munu sitja námskeið Valgeirs Skagfjörð í beinni útsendingu á mánudögum
og föstudögum í þættinum 6 til sjö. Þar mun Valgeir, sem er fyrrum stórreykingamaður, hrista upp í fólki og
gera sitt til að breyta hugarfari þess þannig að það tekur sjálft þá ákvörðun að hætta að reykja og stendur
við hana.

Áhorfendur geta líka hætt

Áhorfendur verða hvattir til að vera með í átakinu en námskeið Valgeirs hefst föstudaginn 13. október og stendur yfir í 3 vikur. Þeim, sem hafa verið að íhuga að hætta að reykja, er bent á að þarna er tækifæri til að stíga skrefið og hætta. Einnig er bent á að hægt er að fá ókeypis aðstoð í reyksímanum: 8006030, ýmsr eru með námskeið til að hjálpa fólki að hætta að reykja og nota má nikotínlyf eða eitthvað annað. Það er misjafnt hvað hentar hverjum og gæti fólk því þurft að prófa sig áfram.

Sjá sjálfshjálparbæklinginn Hættu fyrir lífið
Panta Hættu fyrir lífið

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica