Reyklaus bekkur samkeppnin - skráning hafin
6.10.2006
Skráning í keppnina Reyklaus bekkur er hafin. Allir 7. og 8. bekkir á landinu geta tekið þátt, svo fremi að enginn nemendanna reyki. Yfirskrift keppninnar í ár er „Stöndum þétt saman"
Á alþjóðavísu heitir samkeppnin „Smokefree Class Competition". Í ár munu yfir 20 Evrópuþjóðir taka þátt í keppninni. Glæsileg verðlaun í boði en meðal annars getur einn bekkur unnið utanlandsferð fyrir bekkinn næsta vor.
Bekkur þarf að skrá sig til leiks fyrir 10. nóvember 2006.
Senda grein