Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Brugðist við gjöf á sígarettum með bíómiða

23.8.2006

Lýðheilsustöð barst ábending um að á útvarpsstöð einni væri verið að gefa boðsmiða á bíómynd ásamt sígarettu og að skilyrði fyrir því að fá miðann væri að reykja sígarettuna. Við nánari athugun kom í ljós að þetta reyndist rétt vera. Stöðinni var bent á að með þessu væri væntanlega verið að brjóta tóbaksvarnalög.

Ábending barst um að útvarpsstöðin XFM væri að gefa boðsmiða á forsýningu bíómyndarinnar Thank you for smoking ásamt sígarettu og skilyrði fyrir því að fá að fara á sýninguna væri að reykja sígarettuna. Lýðheilsustöð kannaði málið og viðurkenndi útvarpsstöðin að þetta væri rétt og að þar á bæ teldu menn sig ekki vera að gera neitt rangt. Lýðheilsustöð benti á að væntanlega væri þarna um brot á tóbaksvarnalögum að ræða.

Lýðheilsustöð leitaði álits lögfræðings á málinu og benti hann á að samkvæmt 1. mgr. 7. gr. tóbaksvarnarlaga nr. 6/2002 eru hvers konar auglýsingar á tóbaki bannaðar hér á landi með ákveðnum þröngum undantekningum. Álitaefnið hér væri ekki hvort auglýsingar á tóbaki væru bannaðar heldur hvort háttsemi útvarpsstöðvarinnar hafi falið í sér auglýsingu í skilningi laganna. Í 3. mgr. 7. gr. laganna er hugtakið „auglýsing“ skilgreint sem:

  1. hvers konar tilkynningar til almennings eða sérstakra markhópa, þar á meðal vörukynningar, útstillingar í gluggum verslana, hvers konar skilti og svipaðan búnað,
  2. alla notkun hefðbundinna tóbaksvörumerkja (heita og auðkenna) eða hluta þeirra; undanskildar eru þó vörur sem framleiddar eru undir slíkum merkjum, enda gilda auglýsingatakmarkanir laganna um þær að öðru leyti,
  3. hvers konar umfjöllun í fjölmiðlum um einstakar vörutegundir til annars en að vara sérstaklega við skaðsemi þeirra,
  4. dreifingu vörusýna til neytenda.

Í 2. mgr. ákvæðisins segir ennfremur:

Bannað er enn fremur að sýna neyslu eða hvers konar meðferð tóbaks eða reykfæra í auglýsingum eða upplýsingum um annars konar vöru eða þjónustu og í myndskreytingu á varningi.

Umhverfissvið Reykjavíkurborgar fer með eftirlit með þessari grein tóbaksvarnalaganna og því hefur verið gert viðvart um málið.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica