Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Átak í að selja ungu fólki ekki tóbak

5.7.2006

smella á mynd til að stækkaLýðheilsustöð er í samstarfi við verslanakeðjur í landinu um að fók yngra en 18 ára hvorki selji né kaupi tóbak hjá þeim.

Átakið hófst í tilefni af tóbakslausa deginum, 31. maí sl. og í samvinnu við verslanakeðjurSmellið á mynd til að stækknar voru útbúin veggspjöld með myndum af starfsfólki og texta þar sem minnt er á að samkvæmt lögum er bannað að selja tóbak til þeirra sem eru yngri en 18 ára. Sömu aldurstakmörk gilda fyrir starfsfólk um sölu á tóbaki, þ.e. yngri en 18 ára mega ekki afgreiða og selja tóbak.

Í verslununum, sem taka þátt í átakinu, verður lögð áhersla á að fara að þessum lögum, bæði með því að hafa veggspjöldin uppi við á áberandi stöðum í verslunum og að fræða starfsfólk um þessi lög.

Sumarið er sá tími sem margt ungt fólk kemur til starfa í verslunum víðs vegar um landið og einnig sá tími sem reynslan hefur sýnt að er hættutími hvað varðar að prófa eitthvað nýtt – og jafnvel hættulegt – s.s. að nota tóbak. Því þótti ástæða til að skerpa á þessu lagaákvæði hvað varðar sölu á tóbaki til ungmenna.

Nóatún Krónan 11-11
Smella á mynd til að stækka Smella á mynd til að stækka 11-11,_minni

Veggspjöld fyrir aðrar verslanir

Lýðheilsustöð hefur útbúið skjal sem aðrar verslanir geta notað til að útbúa eigin veggspjöld vilji þær leggja málefninu lið (sjá hér fyrir neðan. Hægt er að bæta inn á spjaldið nafni verslunarinnar og mynd, ef vill. Spjaldið má svo senda í prentun eða hver og einn getur prentað það hjá sér.  Hægt er að velja um þrjá bakgrunnsliti. Fyrir neðan myndirnar er hægt að nálgast word útgáfu af veggspjöldunum og vista hjá sér til að bæta inn á. Leita má til Guðrúnar Hjartardóttur ef þörf er á aðstoð.  

   

     
 Smella á spjaldið til að stækka  Smella á spjaldið til að stækka  Smella á spjaldið til að stækka

Sækja word útgáfu

Sækja word útgáfu

Sækja word útgáfu





Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica