Vinnandi fólk losað undan skaðsemi óbeinna reykinga
Alþingi samþykkti nýlega lög þar sem afnumin er undantekning veitinga- og skemmtistaða um reykleysi í þjónusturýmum. Frá og með 1. júní 2007 eiga öll þjónustusvæði stofnana og fyrirtækja á landinu að vera reyklaus, þar með taldir veitinga- og skemmtistaðir – og er þetta vissulega fagnaðarefni. Ísland verður þá 8. landið í Evrópu sem setur slík lög en einnig eru um 17 fylki í Bandaríkjunum, 6 fylki í Kanada, Nýja Sjáland og flest fylki Ástralíu með slíka lagasetningu. Helstu rökin fyrir slíkum lögum er vinnuvernd starfsmanna í ljósi þekkingar um áhrif óbeinna reykinga á heilsu fólks.
Skaðsemin er ótvíræð
Þeir sem eru á móti banni reykinga á veitinga- og skemmtistöðum hafa einkum viljað halda því á lofti að skaðsemi óbeinna reykinga hafi ekki verið sönnuð. En vatn á myllu þeirra sem hafa haldið fram því gagnstæða er skýrsla sem landlæknir Bandaríkjanna (Surgeon General) sendi nýverið frá sér.
Um er að ræða mjög ýtarlega skýrslu um áhrif óbeinna reykinga á heilsu fólks og segir landlæknir deilur um skaðsemi óbeinna reykinga nú eiga að vera úr sögunni; þær séu tvímælalaust skaðlegar. Skýrsluhöfundar komust að nokkrum megin niðurstöðum: Óbeinar reykingar geta valdið sjúkdómum og ótímabærum dauðsföllum hjá fólki sem ekki reykir.
Börn sem anda að sér tóbaksreyk eru í aukinni hættu á að deyja vöggudauða, fá bráðar öndunarfærasýkingar, vandamál í eyru og alvarlegri astma en ella. Reykingar foreldra geta valdið einkennum í öndunarfærum og hægt á vexti lungna barna þeirra. Óbeinar reykingar hafa samstundis slæm áhrif á hjarta- og æðakerfi og geta valdið hjartasjúkdómum og lungnakrabbameini. Vísindaleg gögn sýna að ekki er til öruggt magn tóbaksreyks, þ.e. ekki er hægt að segja að einhver ákveðinn lágmarks tóbaksreykur sé skaðlaus. Að útrýma reykingum á innandyra verndar fólk fyrir óbeinum reykingum. Aðskilin svæði, hreinsi- og loftræstikerfi geta ekki komið í veg fyrir hættuna sem fylgir óbeinum reykingum. Skýrsla landlæknis Bandaríkjanna er því enn frekari staðfesting á mikilvægi lagasetningar eins og þeirrar sem nýverið var samþykkt hér á landi.
Ekki nóg vernd fyrir börn
Í skýrslu Bandaríkjamannanna er fjallað um að lagasetningar, sem banna reykingar á vinnustöðum og á þjónustusvæðum, nái ekki yfir einkaheimili og verndi því ekki börn að fullu fyrir óbeinum reykingum. Einnig benda þeir á að um 1/5 bandarískra barna búi við óbeinar reykingar á heimilum sínum.
Í þessu samhengi má benda á að árið 1995 bjuggu á Íslandi um 46% þriggja ára barna við reykingar á heimilum sínum en Lýðheilsustöð hefur nýlokið við að safna gögnum þar sem kannað er ástandið á Íslandi nú og hvort breyting hafi orðið þarna á og munu niðurstöðurnar verða birtar með haustinu.
Skilaboð til foreldra:
Í ljósi þeirrar þekkingar sem við höfum á áhrifum óbeinna reykinga á börn er nauðsynlegt að
minna foreldra á að leggja sig fram við að vernda börn sín fyrir óbeinum reykingum. Þetta má gera með því m.a. að
leyfa ekki reykingar á heimilinu,
reykja ekki í bílnum ,
velja reyklausa veitingastaði og kaffihús.
Reyklausir veitingastaðir og kaffihús
Ýmsir hafa haft áhyggjur af því að draga muni úr aðsókn að hvers konar veitingastöðum eftir að bannað verði að reykja þar en þegar þetta er skoðað í þeim löndum þar sem banni hefur þegar verið komið á sýnir að óttinn er ástæðulaus. Niðurstöður rannsókna hafa almennt annað hvort sýnt engin áhrif eða jákvæð áhrif. Í New York borg fjölgaði t.d. störfum í greininni eftir að lögin tóku gildi, velta veitinga- og skemmtistaða jókst og veitingaleyfum fjölgaði. Það má hugsa sér að í einhverjum tilvikum komi aðrir hópar á staði sem þeir áttu erfitt með að sækja áður, s.s fólk með börn, fólk með astma og öndunarfæravandamál (um 15.000 Íslendingar) og ófrískar konur.
Listi yfir veitinga- og kaffihús sem eru nú þegar reyklaus á Íslandi.
Reyklaus veitingahús - afhverju?