Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Nemendur í reyklausum bekkjum vinna geisladiska

30.3.2006

Dregnir hafa verið út nokkrir bekkir sem taka þátt í verkefninu Reyklaus bekkur og hljóta nemendur þessara bekkja geisladiska í vinning.

Um er að ræða gjafabréf frá Skífunni að verðmæti 2.500 krónur. Bekkirnir sem dregnir voru út eru :

  • 7. GBJ í Holtaskóla, Keflavík
  • 7. AB í Lágafellsskóla, Mosfellsbæ
  • 8. GÁ í Seljaskóla, Reykjavík
  • 7. RV í Setbergsskóla. Hafnarfirði

Þátttakendur í verkefninu Reyklaus bekkur, eru minntir á lokaskil á verkefnum sem er miðvikudaginn 3. maí. Sá bekkur sem sem sendir inn besta lokaverkefnið í keppninni, að mati dómnefndar, vinnur ferð til útlanda. Önnur verðlaun eru iPod Shuffle og þriðju verðlaun dagsferð innanlands.

Einnig er minnt á staðfestingarnar um að bekkurinn sé reyklaus sem senda þarf inn 6 sinnum yfir tímabilið!

Litla gjöfin, sem í ár voru litríkir sundpokar, ætti að hafa borist þátttakendum og vonandi hefur hún komið að góðum notum.

Við óskum vinninghöfum til hamingju.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica