Samkeppnin Reyklaus bekkur - gjöf til nemenda
Litla gjöfin er farin til nemenda í samkeppninni Reyklaus bekkur. Samkeppnin er nú í fullum gangi og skráðu 316 bekkir sig til leiks eða tæplega 6300 nemendur.Eins og venjulega sendum við öllum þátttakendum litla gjöf og í ár eru það þessir litríku sundpokar. Þetta er sjöunda árið sem þessi samkeppni er haldin og hefur þátttakan verið mjög góð öll árin. Til að eiga möguleika á að vinna til fyrstu verðlauna verður bekkurinn að senda inn áhugavert efni tengt tóbaksvörnum.
Eru allir þeir sem ætla að skila inn verkefni hvattir til að fara að huga að undirbúningi og skipulagningu þess.
Lokaskil á verkefnum er miðvikudaginn 3. maí. Sá bekkur sem sem sendir inn besta lokaverkefnið í keppninni að mati dómnefndar vinnur ferð til útlanda. Önnur verðlaun eru iPod Shuffle og þriðju verðlaun dagsferð innanlands.
Bestu kveðjur til reyklausra bekkja!
