Reykingar íslenskra unglinga hafa einnig dregist verulega saman
Breytingar á reykingum íslenskum grunnskólum 1974-2004
Hlutfall nemenda sem reykir daglega
Nánari upplýsingar um niðurstöðurnar sem myndin sýnir
Í fréttunum um norsku unglingana kemur fram að rannsóknir á reykingavenjum unglinga hófust í Noregi árið 1975 og að niðurstöður nýjustu rannsóknanna sýni að hlutfall þeirra sem reykja daglega hafi ekki mælst minna frá því að rannsóknirnar hófust. Myndin hér á síðunni sýnir niðurstöður rannsókna hér á landi frá árinu 1974 - 2005 og á henni sést að verulega góður árangur hefur einnig náðst á meðal íslenskra unglinga. Hún sýnir að á árinu 1974 reyktu um 43% 16 ára unglinga á Íslandi daglega en tæplega 10% árið 2005.
Samkvæmt fréttunum frá Noregi reyktu árið 1975 reglulega um 15% drengja og 17% stúlkna á aldrinum 13 og 15 ára. Árið 2005 var hlutfallið hins vegar komið í 4,9% stráka og 5% stúlkna. Framkvæmdastjóri stofnunarinnar Í Noregi, sem gerir rannsóknirnar, Björn-Inge Larsen, sagðist ekki vita af öðru landi sem náð hefði svipuðum árangri.
Reykingar bannaðar á veitingahúsum í Noregi
Skattar á tóbak í Noregi eru háir, eins og hér á landi, m.a. til þess að draga úr tóbaksnotkun. Pakkinn af sígarettum þar er heldur dýrari en hér á landi og kostar rúmar 600 íslenskar krónur. En það sem Noregur hefur fram yfir Ísland er að þar eru reykingar bannaðar á opinberum stöðum og einnig á krám og veitingahúsum - sem án efa á þátt í þeim góða árangri sem náðist við að draga úr reykingum á meðal ungmenna þar í landi.
Frekari upplýsingar um niðurstöður kannana á reykingum
