Rangfærslur um tengsl óbeinna reykinga og lungnakrabbameins
Hið rétta í málinu er að umrædd rannsókn sýnir fram á veik tengsl óbeinna reykinga og lungnakrabbameins en þó ekki tölfræðilega marktæk (til þess er úrtakið ekki nógu stórt). Ástæða þess að ekki er minnst sérstaklega á þessa rannsókn í greinargerðinni er að um 50 faraldsfræðilegar rannsóknir hafa verið gerðar á þessu sviði á síðustu 25 árum og í greinargerðinni er vísað í samantekt úr öllum þessum rannsóknum. Þar á meðal er umrædd rannsókn.
Þessi umrædda rannsókn er því aðeins ein af fjölmörgum rannsóknum á sambandi óbeinna reykinga og lungnakrabbameins. Auk faraldsfræðilegra rannsókna hafa verið gerðar rannsóknir á dýrum, mælingar á eiturefnum og líffræðilegar rannsóknir. Þegar niðurstöður allra þessara rannsókna eru teknar saman, þar með talin umrædd rannsókn á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, kemur skýrt í ljós að óbeinar reykingar (,,exposure to second hand smoke”) eru krabbameinsvaldandi (,,carcinogenic”). Þessari einu rannsókn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar hefur síður en svo verið stungið undir stól, heldur hafa niðurstöður hennar verið teknar með í tölfræðútreikninga og frekar styrkt samband óbeinna reykinga og lungnakrabbameins, þar sem niðurstöðurnar hnigu í sömu átt og fjölda annarra rannsókna, án þess þó að vera tölfræðilega marktækar.
Tengillinn hér fyrir neðan vísar á Monograph 83 (Monographs on the Evaluation of Carcinogenic Risks to Humans) þar sem Krabbameinsrannsóknastofnun WHO (IARC) dregur saman niðurstöður rannsókna um óbeinar reykingar og tengsl þeirra við krabbamein: http://www-cie.iarc.fr/htdocs/indexes/vol83index.html
9. mars 1998
ÓBEINAR TÓBAKSREYKINGAR VALDA LUNGNAKRABBAMEINI, LÁTIÐ EKKI BLEKKJAST
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur opinberlega verið sökuð um að leyna upplýsingum. Andstæðingar stofnunarinnar halda því fram að hún hafi stungið undir stól skýrslu sem ætlað var að sanna vísindalega að tengsl væru á milli óbeinna reykinga eða tóbaksreyks í umhverfi (ETS) og ýmissa sjúkdóma, einkum þó lungnakrabbameins. Er því haldið fram að ekki hafi tekist að sanna það. Báðar fullyrðingarnar eru rangar.
Umrædd rannsókn er tilfella-viðmiðuð rannsókn (,,case control study”) á áhrifum óbeinna reykinga á líkur á lungnakrabbameini hjá evrópskum þýðum, sem 12 rannsóknamiðstöðvar í sjö Evrópulöndum hafa unnið að undanfarin sjö ár, undir yfirumsjón Krabbameinsrannsóknastofnunar WHO (IARC).
Í fréttaflutningi undanfarið hafa niðurstöður rannsóknarinnar verið algjörlega rangtúlkaðar en þeim ber að mestu saman við niðurstöður úr sambærilegum rannsóknum bæði í Evrópu og víðar: Óbeinar reykingar valda lungnakrabbameini hjá fólki sem ekki reykir.
Í rannsókninni kom fram að ætla megi að líkur aukist um 16% á lungnakrabbameini hjá reyklausum ef makar þeirra reykja. Ætla má að aukningin sé um 17% hjá þeim sem búa við óbeinar reykingar á vinnustað. Úrtakið var hins vegar það lítið að hvorug niðurstaðan var tölfræðilega marktæk. Rannsóknin bendir þó til þess að það dragi úr áhættunni þegar óbeinar reykingar eru ekki lengur til staðar.
Skýrsla um rannsóknina sjálfa var í febrúar 1998 send til viðurkennds vísindatímarits með það fyrir augum að fagfólk yfirfæri hana og gagnrýndi, eins og venja er. Vegna þessa er skýrslan í heild sinni ekki enn opinberlega aðgengileg (í mars 1998). Í ljósi ofangreindra aðstæðna hafa höfundar skýrslunnar þó tekið þá ákvörðun að útbúa útdrátt úr skýrslunni ætlaðan fjölmiðlum.
«Afar mikilvægt er að gera sér grein fyrir að niðurstöður rannsóknar þessarar eru í fullu samræmi við helstu vísindalegar rannsóknir á málefninu sem yfirvöld í Ástralíu, Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna og Kaliforníuríki gáfu út árið 1997,» sagði Neil Collishaw, settur yfirmaður tóbaks- og heilbrigðisdeildar WHO í Genf. «Breska læknatímaritið British Medical Journal birti einnig umfangsmikla eftirgreiningu á tengslum óbeinna reykinga og lungnakrabbameins árið 1997. Bæði þessi rannsókn og fyrri greiningar á vísindalegum gögnum hafa leitt til ótvíræðs samhljóða álits um heim allan: óbeinar reykingar valda lungnakrabbameini og öðrum sjúkdómum,» bætti hann við.
«Krabbameinsrannsóknastofnun WHO er stolt af þeim vísindalegu rannsóknum sem þessir evrópsku vísindamenn hafa staðið að,» sagði dr. Paul Kleihues, forstjóri stofnunarinnar. «Við höfum miklar áhyggjur af röngum og villandi yfirlýsingum sem nýlega hafa komið fram í fjölmiðlum. Það er engin tilviljun að þessar röngu upplýsingar komu fyrst fram í breskum blöðum rétt fyrir reyklausa daginn í Bretlandi og um það leyti sem áformað var að gefa út skýrslu bresku vísindanefndarinnar um tóbak og áhrif þess á heilbrigði.»
Allar fréttatilkynningar WHO, upplýsingablöð og greinar er hægt að kynna sér, ásamt öðrum gögnum um þetta málefni, á vefsetri WHO, http://www.who.ch
Fréttatilkynningin á ensku er hér: http://www.who.int/inf-pr-1998/en/pr98-29.html
Vísindagreinina, sem birt var úr umræddri rannsókn, má lesa hér:
http://jncicancerspectrum.oxfordjournals.org/cgi/reprint/jnci;90/19/1440.pdf

