Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Frítt til Evrópu fyrir reyklausa! - Fjórir vinningshafar dregnir út

13.1.2006

Frítt til Evrópu fyrir reyklausa var keppni fyrir fólk á aldrinum 15 – 20 ára. Þetta var tvískipt keppni, annars vegar fyrir reyklausa og hins vegar fyrir þá sem reykja en vilja hætta. Þátttakendur þurftu að skrá sig til leiks fyrir 10. nóvember og þurftu þeir sem ætluðu að hætta að reykja að vera reyklausir frá 10. nóvember til 10. desember. Í hvorum flokki voru dregnir út tveir vinningar, annars vegar fyrir þá sem ekki reykja og hins vegar fyrir þá sem ætla að hætta. Vinningarnir voru Evrópuferð að verðmæti 50.000 krónur  og 40.000 kr.

Frítt til Evrópu fyrir reyklausa! Samkeppni Frítt til Evrópu Postkort_1
Quit and win – don’t start


Vinningshafar

Úr hópi þeirra sem ekki reykja:

  • Halla Tinna Arnardóttir sem hlaut 50.000 kr. ferðavinning
  • Gréta Mar Guðbrandsdóttir sem hlaut 40.000.- ferðavinning


Úr hópi þeirra sem hættu að reykja:

  • Birna Rebekka Björnsdóttir sem hlaut 50.000 kr. ferðavinning
  • Bjarki þór Reynisson sem hlaut 40.000 kr. ferðavinning

Vertu ferskari
Veggmyndir og póstkort voru send í grunn- og framhaldsskóla auk þess sem keppnin var auglýst á vinsælum vef- og blogsíðum. Þátttakan var framar öllum vonum en alls skráðu sig rúmlega 6100 þátttakendur í keppnina. Um 5600 sem ekki reyktu og rúmlega 500 sem voru tilbúnir að hætta. Þetta er töluvert meiri þátttaka en 2004 þegar 3600 voru skráðir til leiks. Þess má geta að þetta er þriðja árið sem þessi keppni er haldin hér á landi og hefur hlotið styrk frá Evrópusambandinu. Markmiðið með keppninni er að fá ungt fólk til þess að lifa heilbrigðu lífi í reyklausu umhverfi.

frittevropu2Bjarki Þór Reynisson

„Mig hafði langað til að byrja að æfa lyftingar aftur en það var hálf vonlaust nema að maður hætti að reykja. Keppnin hjálpaði mér að taka ákvörðun og núna finn ég strax muninn t.d. miklu léttar að vakna á morgnana.“

Bjarki Þór hlaut 40.000.- krónur í ferðavinning.

frittevropu1

Birna Rebekka Björnsdóttir

„Mér var sagt frá þessari keppni og skráði mig. Síðan fór ég að hugsa hvað það væri slæmt að hafa ekki hætt ef maður skyldi vera dregin út. Ég reykti bara öðru hvoru en hætti og sé ekki eftir því.“

Birna Rebekka hlaut 50.000.- krónur í vinning

 

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica