Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Að hætta að reykja um áramót

1.1.2006

Smellið á myndina til að opna heimasíðu  Reyklausa símansÁramót er sá tími sem margir nota til að hefja breytingar á einhverju í sínu lífi og þar eru reykingar oftar en ekki ofarlega á blaði, þ.e. að hefja nýja árið á því að hætta að reykja eða nota annað tóbak. Ekki þarf að fjölyrða hér um það hversu erfitt það reynist mörgum en þar eru þó ýmsar leiðir til hjálpar. Reyklausi síminn er ein þeirra.

Lýðheilsustöð styrkir starfsemi Reyklausa símans og til að leggja sitt af mörkum til að aðstoða fólk við að hætta að reykja er svarað í símann lengur en vanalega á hverjum virkum degi, fyrstu tvær vikurnar í janúar. Símaþjónustan er ókeypis og ráðgjöf veita hjúkrunarfræðingar sem hafa langa reynslu af því að aðstoða fólk sem vill hætta tóbaksnotkun og að halda reykleysið út.
Einnig má benda á að að nokkrir aðilar eru nú í upphafi árs með námskeið til að aðstoða fólk við að hætta að reykja, má þar benda á Krabbameinsfélagið og Guðjón Bergmann.

Hættum að reykja í janúar

Margir nota upphaf nýs árs til að tileinka sér breyttan lífstíl og hætta að reykja. Þetta hentar sumum ágætlega en vænlegast til árangurs er að hver finni þann tíma sem hentar honum. Hér á eftir eru nokkur ráð sem geta vonandi auðveldað einhverjum að hætta að reykja og halda reykleysið út.

Fyrsta stig: Undirbúningur

Gott er að búa sig vel undir að hætta að reykja.

Þekktu reykingavenjur þínar: Gott getur verið að halda dagbók í viku um hvenær, hvar og hvers vegna þú reykir til að koma auga á þá þætti sem auka líkur á reykingum og forðast þá. Gott er að skrifa niður tillögur að því sem hægt er að gera í stað þess að reykja.

Ástæður þess að hætta: Gott er að skrifa á blað mikilvægustu ástæður þess að hætta, kostina og hvað þú telur þig öðlast í kjölfarið. Vertu alltaf með þetta við höndina.

Brjóttu upp vanann: Þegar ákveðið hefur verið að hætta er gott að byrja á að fækka þeim stöðum þar sem má reykja - búa til reyklaus svæði. Þau geta t.d verið heimilið, bíllinn o.s.frv. Hafðu svæðin sem flest til að brjóta upp vanann og þá verður baráttan auðveldari eftir að þú hættir.

Stuðningur: Sumir kjósa að hætta upp á eigin spýtur en gott er að vita hvar er hægt að fá stuðning, ef þörf er á, áður en að dagurinn rennur upp.

  • Ráðgjöf í reykbindindi í síma 800 6030 er ókeypis símaþjónusta fyrir fólk sem vill hætta að nota tóbak. Þar starfa hjúkrunarfræðingar með sérþekkingu á tóbaksmeðferð. Þeir veita persónulega ráðgjöf, byggðri á reykingasögu þess sem hringir og þörfum hvers og eins. Þeir bjóða eftirfylgni, hvatningu og stuðning. Frá 2.-13. janúar er opið lengur en vanalega, eða á milli kl. 17 og 21 alla virka daga.
  • Krabbameinsfélag Reykjavíkur heldur reglulega námskeið í reykbindindi. Næsta hefst 12. janúar (nánari upplýsingar í síma 540 1900).
  • Guðjón Bergmann heldur einnig reglulega námskeið í reykbindindi. Næstu hefjast 6. og 7. janúar (nánari upplýsingar á www.vertureyklaus.is).
  • Heimilislæknirinn þinn, eða heilsugæslulæknir, ætti einnig að geta aðstoðað.

Annað stig: Að hætta

Að hætta er mikil ákvörðun en hún er fljót að borga sig, fjárhagslega og heilsufarslega.

Hér koma nokkur ráð til að styðjast við:

  • Veldu dag til að hætta og stattu við hann.
  • Hafðu listann yfir „hvers vegna þú ákvaðst að hætta“ alltaf við hendina.
  • Ef þú ákveður að nota níkótínlyf hafðu þau þá við hendina þegar þú ákveður að hætta og farðu eftir leiðbeiningum.
  • Drekktu mikið af vatni.

Mundu að þegar þú hættir að reykja skiptir hugarfarið öllu máli. Einbeittu þér alltaf að - og minntu þig á - jákvæðu hliðar þess að hætta og ekki hugsa um að þú sért að pína þig eða getir þetta ekki.

Þriðja stig: Að halda út

Að halda sér reyklausum er breyting á lífstíl og getur tekið á. Það er þó margt hægt að gera til auðvelda skrefin til reyklauss lífs.

  • Ef þú tengir reykingar við sérstakar aðstæður, forðastu þær þá fyrst um sinn og prófaðu þig svo áfram. Gott er að vera búinn að ákveða viðbrögð við erfiðum aðstæðum.
  • Taktu tíma fyrir sjálfa/-n þig á hverjum degi þar sem þú gerir eitthvað fyrir þig.
  • Minntu þig reglulega á af hverju þú hættir.
  • Nýttu þér stuðning annarra.
  • Hugsaðu um sjálfa þig sem manneskju sem reykir ekki en ekki sem fyrrverandi reykingamann.
  • Verðlaunaðu þig reglulega með peningunum sem þú sparar. Þú átt það skilið!

 

Reykingar kosta u.þ.b. kr.
( 1 pk. á dag)

Daglega           580

Á viku             4060

Á mánuði        17.400

Á ári                211.700 = t.d. safaríferð til Afríku, ...

 

Gangið þér vel

Jakobína H. Árnadóttir, M.Sc. í heilsusálfræði,

verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð

 

 

 

 

 

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica