Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Félagslíf menntaskóla reyklaust

19.12.2005

Í byrjun þessa skólaárs tóku nemendafélög Menntaskólans í Reykjavík þá stefnu að halda öll böll og alla atburði félagslífsins reyklausa. Árangur þessarar herferðar hefur farið fram úr björtustu vonum, tvö reyklaus böll hafa þegar verið haldin við frábærar undirtektir nemenda og er reyklaust jólaball skipulagt þann 19. desember.

Fleiri framhaldsskólar, eins og Verslunarskóli Íslands, hafa einnig gert félagslíf sitt reyklaust og halda nú reyklausar skemmtanir við mjög góðar undirtektir. Lýðheilsustöð styður þetta framtak nemenda framhaldsskólanna og vill vekja athygli á því hvað frumkvæði fárra einstaklinga getur breytt miklu. Við skorum hér með á alla framhaldsskóla landsins að slást í hópinn og strengja áramótaheit: Reyklaust félagslíf til frambúðar!



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica