Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Enn fækkar þeim sem reykja

13.12.2005

Í nýrri samantekt þriggja kannanna, sem Gallup gerði fyrir Lýðheilsustöð, á tóbaksnotkun Íslendinga kemur í ljós að reykingar minnka enn.

Um 19% fólks á aldrinum 15-89 ára reykir daglega árið 2005, miðað við tæp 30% upp úr 1990 (sjá mynd 1).

Smellið á myndina til að stækka

Að venju er töluverður munur á reykingum fólks eftir aldri. Tíðni reykinga er langminnst í elstu aldurshópunum (70-89 ára) en hæst hlutfall reykingamanna er í aldurshópnum 20-29 ára.

Þegar skoðað er hvaða aldurshópur er helst að hætta að reykja koma út mismunandi niðurstöður eftir því hvort horft sé á þá sem hættu fyrir minna en ári eða meira en ári. Algengast er að fólk í yngstu aldurshópunum (15-29 ára) hafi hætt fyrir minna en ári en það er sjaldgæfast í elsta aldurshópunum (70-89 ára). Fjöldi fólks sem hefur hætt fyrir meira en ári eykst hins vegar með auknum aldri (fram til 79 ára), eins og búast má við þar sem fólk hefur haft lengri tíma til að hætta. Hafa ber í huga að bak við hvern aldurshóp í könnuninni eru ekki mjög margir einstaklingar og ber því að líta á niðurstöðurnar á mynd 2 fyrst og fremst sem vísbendingar.

Smellið á myndina til að stækka

Eins og undanfarin ár kemur fram mikill munur á tíðni reykinga eftir menntun. Í hópi háskólamenntaðra reykja 9,5% daglega en í hópi fólks sem ekki er með háskólamenntun eru 22,5% dagreykingamenn. Þegar þróun reykinga er skoðuð eftir því hvort fólk hefur lokið háskólanámi eða ekki kemur í ljós að síðan 1989 hefur reykingamönnum fækkað meira í hópi háskólamenntaðra en meðal þeirra sem ekki hafa háskólamenntun. Tíðni reykinga hjá háskólamenntuðum fór úr 16,9% í 9,5% (43,8% minnkun) en úr 33,1% í 22,5% (32% minnkun) í hópi fólks ekki með háskólamenntun (sjá mynd 3).

Smellið að mynd til að stækka


Sjá samantektina í heild sinni (PDF-skjal)

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica