Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Jákvæð viðhorf til reyklausra veitinga- og kaffihúsa

9.12.2005

Nýverið gerðu nemendur við Háskólan í Reykjavík BSc verkefni þar sem skoðuð voru viðhorf gesta veitinga- og skemmtistaða, sem og viðhorf eigenda og starfsmanna, til lagasetningar um reyklaus veitingahús. Í ljós kom að viðhorfin eru almennt jákvæð bæði hjá gestum og eigendum, einnig að fáir telja sig síður fara á slíka staði ef þeir eru alveg reyklausir.

Rannsóknin var unnin af nemendunum Júlíusi Inga Jónssyni og Ragnhildi Ágústsdóttur og hún leiddi m.a. í ljós að meirihluti gesta kaffihúsa, veitinga- og skemmtistaða, sem spurðir voru, sagðist vera hlynntur reykingabanni eða 72,5% en 17% andvíg. 32,9% töldu að aðsókn ykist í kjölfar banns, 42,9% að hún stæði í stað og 24,3% að hún drægist saman. Þá töldu 47,5% að þau myndu sækja staðina oftar í kjölfar reykingabanns, 40,5% jafn oft og 12,0% sjaldnar.

Í lok verkefnisins drógu höfundar þá ályktun af niðurstöðunum að tímabært væri að setja lög um reyklaus veitingahús.

Lesa fréttina á MBL.is



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica