Keppnin Reyklaus bekkur 2005 – 2006 er hafin
Reyklaus bekkur er keppni þar sem öllum reyklausum 7. og 8. bekkjum í landinu er boðið að taka þátt svo fremi að enginn nemenda reyki. Frestur til að skrá sig til leiks hefur verið framlengdur þar til í vikulok, þ.e. til 12. nóvember.

Þetta er í sjöunda sinn sem samkeppnin er haldin hér á landi en Lýðheilsustöð stendur að keppninni, sem nýtur fjárstuðnings frá Evrópusambandinu. Í ár munu, auk Íslands, yfir tuttugu Evrópuþjóðir taka þátt í keppninni.
Þátttakan hefur alltaf verið mjög góð hér á landi en undanfarin ár hafa yfir 300 bekkir í skólum landsins tekið þátt. Til að eiga möguleika á að vinna til fyrstu verðlauna í samkeppninni verður bekkurinn að senda inn áhugavert efni tengt tóbaksvörnum. Þetta efni þarf að berast fyrir 3. maí 2006. Dómnefnd mun þá fara yfir verkefnin og velja sigurvegara. Vegleg fyrstu verðalaun eru í boði því vinningsbekkurinn hlýtur utanlandsferð að launum. Fyrir annað sætið fá allir nemendur bekkjarins iPod suffle. Og þriðju verðlaun eru heldur ekki af verri endanum því sá bekkur fær dagsferð hér innanlands. Auk þessa er dregið tvisvar sinnum úr hópi þeirra bekkja sem staðfesta reykleysi bekkjarins, en það þarf bekkurinn að gera 6 sinnum yfir tímabilið í gegnum vefsiðu, og þeir bekkir fá geisladiska og bakpoka. Einnig fá allir þátttakendur senda litla gjöf.
Vinningshafar síðasta árs
Á síðasta skólaári bárust mjög mörg vel unnin lokaverkefni og var dómnefnd vandi á höndum að velja þar úr það besta. En bekkurinn sem bar sigur úr bítum var 8.HR í Austurbæjarskóla. Bekkurinn gerði bækling og stóð fyrir fræðsludegi í Smáralind. Nemendur dreifðu bæklingnum og buðu gestum og gangandi að skipta á sígarettu og kökusneið. Reyklausum vegfarendum var í viðurkenningaskyni réttur miði með jákvæðum staðhæfingum. Að launum hlutu nemdurnir helgarferð til Kaupmannahafnar.
Hér er hægt að skrá bekk til leiks
