Mörg þúsund blöðrum dreift á Menningarnótt
Það voru stúlkur úr 2. flokki frá Val og KR sem dreifðu blöðrunum. Þær gengu um bæinn og réttu öllum slíka blöðru og var yngri kynslóðin sérstaklega spennt á að fá slíkan glaðning. „Takk fyrir góða loftið" er til að minna reykingafólk á að reykja ekki í návist þeirra sem reykja ekki og sérstaklega ekki í návist barna.

