Vinnustaðir í Skotlandi verða reyklausir
Skotland varð fyrsti hluti Bretlands til að taka upp löggjöf um reyklausa vinnustaði þegar mikill meirihluti þingmanna (97 á móti 17) samþykkti löggjöf um að allir vinnustaðir í Skotlandi yrðu reyklausir.
Heilbrigðisráðherra Skotlands, Andy Kerr, tilkynnti að lögin taki gildi 26. mars 2006, sem gefur Skotum aðeins 38 vikur til að aðlagast nýju löggjöfinni. Lögin gera ráð fyrir að allir veitingastaðir, kaffihús, skrifstofur og fleiri vinnustaðir verði reyklausir. Einnig verða reykingar óheimilar í öllum almenningssamgöngum.
Á síðastliðnum árum hafa mörg lönd tekið upp löggjöf um að allir vinnustaðir skulu vera reyklausir, þeirra á meðal eru Írland, Nýja-Sjáland, Noregur og Svíþjóð. Í öllum löndunum hefur innleiðing löggjafarinnar gengið vel og henni samfara hefur heilsufar starfsmanna batnað. Engin ástæða er til að ætla annað en að innleiðing löggjafarinnar gangi jafn vel í Skotlandi.
