Takk fyrir góða loftið!
Þakkirnar – eða skilaboðin – eru birt á rauðlitaðri blöðru enda er megin þráðurinn í að minna á mikilvægi
hreina loftsins að „halda heilsunni á lofti“, þ.e. heilsan ofar öllu. Landsmenn urðu í fyrsta sinn varir við skilboðin um verslunarmannahelgina en þá var áletruðum blöðrum dreift – og haldið á lofti – á útihátíðum helgarinnar í Galtalæk og á unglingalandsmóti UMFÍ, Vík í Mýrdal.
Á næstu misserum verður reglulega minnt á mikilvægi hreina loftsins og er þess vænst að með þessum jákvæðu skilaboðum haldi reykingafólk áfram að taka tillit til þeirra sem óska þess að vera lausir við hættuna af óbeinum reykingum. Ekki síst á þetta við um starfsfólk veitingahúsa og skemmtistaða að ógleymdum börnum.
Hægt er að fá áletraðar blöðrður hjá Lýðheilsustöð með því að senda pöntun á pontun@lydheilsustod.is
Um skaðann af óbeinum reykingum.
