Reyklausi dagurinn er í dag!
Í ár er áherslan á heilbrigðisstarfsmenn og tóbaksvarnir. Athygli
heilbrigðisstarfsmanna er beint að mikilvægi hlutverks þeirra í tóbaksvörnum sem og tækifærum þeirra til að hafa þarna áhrif. Jafnframt er athygli almennings vakin á því að heilbrigðisstarfsmenn geta veitt aðstoð og stuðning við að hætta tóbaksnotkun.
Dagskrá dagsins
Í tilefni dagsins verður margt um að vera:
- Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður verða í Kringlunni og Smáralind milli kl. 15-18 til að veita fólki upplýsingar og aðstoð við að hætta tóbaksnotkun.
- Símaþjónustan Ráðgjöf í reykbindindi-sími 800 6030 verður opin frá kl. 10-22. Þangað getur fólk hringt og
fengið aðstoð hjá sérþjálfuðum hjúkrunarfræðingum við að hætta tóbaksnotkun.
- Læknafélag Íslands, með stuðningi frá Lýðheilsustöð og Landlæknisembættinu, gefur út bækling fyrir
lækna um viðtalsmeðferð fyrir fólk sem reykir.
- Ákveðnar heilbrigðisstofnanir og heilsugæslur verða með sérstaka dagskrá þennan dag og bjóða fólki aðstoð við að hætta tóbaksnotkun.
- Á reyklausa daginn verður einnig haldin uppskeruhátíð myndasamkeppni um tóbaksvarnir að Ásvöllum í Hafnarfirði milli kl. 15 og 17.
