Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Reyklaus bekkur - sigurvegarar!

12.5.2005

Evrópusamkeppni meðal reyklausra 7. og 8. bekkja er senn á enda, þetta skólaárið. Þetta er sjötta árið sem við erum með í þessu verkefni. Í ár voru um 320 bekkir skráðir til leiks. Eins og áður staðfestu nemendur reykleysi sitt í gegnum vefsíðu, nú á lydheilsustod.is.

Á skólaárinu voru dregnir út vinningar sem voru bakpokar, geisladiskar og geislaspilarar. Þá sendum við öllum litla gjöf sem í ár var lyklaband. Því miður hafði lyklabandið að geyma tvær ,,prentvillur'' sem okkur þykir mjög leitt og höfum við gert ráðstafanir til að öllum verði sent nýtt lyklaband.

Til að eiga möguleika á fyrsta vinningi þurfti bekkurinn að senda inn tillögur að fræðsluefni um skaðsemi tóbaks eða annan áróður gegn tóbaksnotkun. Aldrei hafa borist jafn mörg lokaverkefni og var áberandi hvað þau voru vel unnin og vel útfærð. Þegar á heildina er litið getur maður ekki annað en hrifist af öllu því starfi sem þetta verkefni leysir úr læðingi hjá þessum dugmiklu nemendum. Vandi dómnefndar var mikill en niðurstöður liggja fyrir og eru eftirfarandi:

 1. sæti
Austurbæjarskóli, 8. HR.  Bekkurinn gerði bækling og stóð fyrir fræðsludegi í Smáralind.  Nemendur dreifðu m.a. bæklingum og buðu gestum og gangandi að skipta á sígarettu og kökusneið. Reyklausum vegfarendum var réttur miði með jákvæðum staðhæfingum í viðurkenningarskyni.

Bekkurinn hlýtur í vinning helgarferð til Kaupmannahafnar.

Þá fá eftirtaldir bekkir dagsferð í vinning:

 Ártúnsskóli,  7. AS og 7. EG.

Hafralækjarskóli,  7. og 8. bekkur.

Grunnskólinn að Hólum, 7. og 8. bekkur

Vesturbæjarskóli,  7. V.

Við óskum vinningshöfum til hamingju og þökkum fyrir þátttökuna og ánægjulegt samstarf. Að lokum viljum við benda á stærsta ávinninginn,  að vera frjáls reyklaus!



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica