Ánægja með samþykkt Samtaka ferðaþjónustunnar
Lýðheilsustöð og tóbaksvarnaráð fagna því að aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar, haldinn á Grand Hóteli Reykjavík þann 7. apríl 2005, leggi til að allir veitinga- og skemmtistaðir verði reyklausir frá og með 1. júní 2007. Með þessu hafa Samtök ferðaþjónustunnar fylkt sér í lið þeirra sem vilja tryggja öllu vinnandi fólki reyklaust umhverfi. Mikill meirihluti þjóðfélagsins hefur sýnt að hann kjósi að allir geti unnið í reyklausu umhverfi. Lýðheilsustöð og tóbaksvarnaráð undirstrika mikilvægi þess að löggjafinn setji sem fyrst lög þessu til staðfestingar.
Almenn ánægja ríkti meðal fundarmanna á fundi tóbaksvarnaráðs, 8. apríl sl., vegna þeirrar yfirlýsingar Samtaka ferðaþjónustunnar, á aðalfundi þeirra 7. apríl, að stefna bæri að því að allir veitinga- og skemmtistaðir yrðu reyklausir eígi síðar en 1. júní 2007. Mikilvægt skref hefur þarna verið stigið í þá átt að samþykkt náist um það í þjóðfélaginu að allir starfsmenn eigi rétt á að vinna í reyklausu umhverfi.
