Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Tvö reyklaus veitingahús bætast í hópinn

1.4.2005

Föstudaginn 1. apríl bættust í hóp reyklausra veitingahúsa á Íslandi Segafredos við Lækjatorg og Kaffi Nilsen á Egilsstöðum.

Lýðheilsustöð lýsir yfir ánægju sinni með að þrátt fyrir að frumvarp um reyklaus veitingahús hafi ekki enn verið samþykkt á Alþingi fjölgar reglulega veitingastöðum og kaffihúsum sem ákveða að gerast reyklaus. Í dag bættist kaffihúsið Segafredos við Lækjatorg og veitingahúsið Kaffi Nilsen á Egilsstöðum í stækkandi hóp reyklausra veitinga - og kaffihúsa. Nýverið bættust einnig Múlakaffi, Sundanesti og Draugasetrið á Stokkseyri í hópinn.

Lýðheilsustöð birtir lista yfir reyklaus veitinga- og kaffihús. Hafa skal í huga að þessi listi er ekki tæmandi en reynt er að uppfæra hann reglulega. Allar ábendingar um reyklaus veitinga – og kaffihús eru vel þegnar og er hægt að tilkynna þær í síma 5800900.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica