Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Langflestir Írar ánægðir með reykingabannið

30.3.2005

Írar ákváðu að allir skemmti- og veitingastaðir landsins skyldu vera reyklausir frá og með 29. mars 2004. Á eins árs afmæli reykingabannsins, þ.e. 29. mars 2005, var sagt frá reynslunni og kynntar niðurstöður viðhorfskannanna en í stuttu máli má segja að allur þorri landsmanna sé mjög ánægður með reykingabannið.

Talsvert var fjallað um málið á afmælisdeginum m.a. í dagblaðinu The Indipendent þar sem m.a. kemur fram að reykingabannið hafi sett afgerandi mark sitt á menningar- og félagslíf landsmanna. Á aðeins einu ári hafi andrúmsloft írskra kráa breyst frá því að vera dimmt og reykmettað yfir í bjart og létt, sem langflestir Írar líti á sem framfaraskref.

Reykingabann nær til nær allra vinnustaða en áhersla var lögð á krár og veitingastaði. Með því að gera þessa staði reyklausa hefur skapast sérstök reykingarmenning, þ.e. reykingarfólk sem er reykjandi fyrir utan þessa staði. Til að koma til móts við fólkið hafa margir staðanna komið upp aðstöðu utandyra, s.s. með því að koma þar fyrir borðum, stólum og gashiturum og sumir hafa byggt verönd eða skýli við staðinn.

Yfirvöld hafa gengið strangt eftir því að banninu sé framfylgt og enga linkind sýnt þeim sem brjóta bannið. Þeir veitingahúsa- og kráareigendur sem leyfa gestum sínum að reykja innandyra hafa verið kallaðir fyrir dómstóla þar sem þeir hafa verið dæmdir til að greiða háar sektir. Og þó gert sé ráð fyrir að einhverjir leyfi reykingar í laumi þá virðist, skv. nýjustu tölum, sem 94% kráa og 99% veitingahúsa hlýði banninu.

Reyklaust – svona á þetta að vera!

Það sem vekur einna mesta athygli er að þessi aðgerð, sem vakti svo miklar deilur og þótti áhættusöm pólítískt séð, skuli á einu ári hafa náð svo víðtækri samþykkt á meðal þjóðarinnar að nú er litið á að það sem eðlilegan hlut að ekki er reykt innandyra á þessum stöðum. Spár um að staðirnir yrðu fyrir miklum tekjumissi hafa langt í frá ræst. Þess í stað hafa nýir viðskiptavinir bæst í hópinn, þ.e. þeir sem áður treystu sér ekki til að koma vegna tóbaksreyksins.

Stéttarfélög hafa látið gera kannanir meðal starfsfólks kráa og veitingahúsa sem sýna að 90% starfsfólks þessara staða í Dublin er samþykkt banninu og segjist ekki eiga í neinum erfiðleikum með að framfylgja banninu. Að auki sögðust álíka margir finna fyrir því að bannið hafi haft jákvæð áhrif á heilsu þeirra.

Lesa ensku greinina.


Stjórnvöld í öðrum löndum geta nýtt sér reynslu Íra

Fréttir af Breakingnews.ie

Á írsku vefsíðunni Breakingnews.ie má lesa enn meira um árs afmæli reykingabannsins þar kemur m.a. fram að reynsla Íra ætti að hvetja aðrar þjóðir heims til dáða í þessum efnum. Það að mikill meiri hluti írsku þjóðarinnar samþykki þennan sögulega og áhrifaríka þátt í átt að bættri lýðheilsu séu skýr skilaboð til stjórnvalda um allan heim sem eru að íhuga að taka upp sams konar bann.

Um niðurstöður kannana segir að:

80% reykingarmanna segja að rétt hafi verið að setja bannið á.

96% aðspurðra telur árangur bannsins góðan, þar á meðal 94% reykingarmanna.

98% aðspurðra töldu vinnustaði heilsusamlegri eftir bannið, þar á meðal 94% reykingarmanna.

En þó bannið hafi haft mjög jákvæð áhrif í átt að heilbrigðara þjóðfélagi þá telja Írar að enn sé margt ógert til að minnka reykingar verulega því enn reykja um 25% þjóðarinnar.

Lesa umfjöllunina.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica