Sími : 5 800 900
Tóbaksvarnir

Efling-stéttarfélag styður frumvarp um tóbaksvarnir

23.3.2005

Efling, stæðsta stéttarfélag starfsmanna veitinga- og skemmtistaða með veltu rúmlega 5000 starfsmanna á ársgrundvelli og 2500 starfsmenn starfandi í hverjum mánuði, fagnar frumvarpi Sivjar Friðleifsdóttur og fleiri þingmanna um breytingar á lögum um tóbaksvarnir og hvetur Alþingi til að samþykkja frumvarpið.

Stjórn Eflingar-stéttarfélags hefur fjallað um nýframkomið frumvarp Sivjar Friðleifsdóttur og fleiri þingmanna um breytingar á tóbakslögum.
Stjórn Eflingar lýsir yfir einróma stuðningi við frumvarpið þar sem mjög mikilvæg vinnuvernd felst í því gagnvart hópum starfsmanna á veitingastöðum sem í dag verða fyrir heilsutjóni vegna óbeinna reykinga. Með frumvarpinu eru afnumdar undanþágur sem gilt hafa lengi um reykingar á vinnustöðum fólks á veitingahúsum og tryggir þannig þessu starfsfólki vinnuaðstæður sem eru sambærilegar öðru launafólki.
Stjórn Eflingar-stéttarfélags hvetur einnig atvinnurekendur og rekstraraðila í hótel- og veitingarekstri til að styðja auknar tóbaksvarnir og leggjast þannig á sveif með þeim sem vilja efla heilsuvernd á vinnustöðum.
Efling-stéttarfélag minnir á að víða á Vesturlöndum hafa tóbaksreykingar verið bannaðar á hótelum og veitingastöðum. Hrakspár um að ekki sé hægt að reka reyklausa veitingastaði hafa ekki reynst á rökum reistar. Efling-stéttarfélag telur að samþykkt frumvarpsins muni hafa þau áhrif að draga almennt úr reykingum landsmanna og auka þannig almenna heilsuvernd í landinu.
Félagið leggur til við Alþingi að málið fái hraða meðferð í gegnum þingið.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica