Beint í leiðarkerfi vefsins.
,,Ekki segja síííís!"
er heitið á tölvuleik sem Lýðheilsustöð lét útbúa sem hluta af fræðslu fyrir ungt fólk um skaðsemi munntóbaks. Þeir sem taka þátt í leiknum eiga möguleika á að vinna bíómiða fyrir tvo á valdar myndir sem sýndar eru í Sambíóunum. Nú hafa verið dregin út nöfn 50 vinningshafa og þau birt hér á síðunni.
Lesa meira
Samkeppnin Reyklaus bekkur er hafin og er hún nú haldin í ellefta sinn hér á landi. Skráning er hafin en allir 7. og 8. bekkir á landinu geta tekið þátt, svo fremi að enginn nemendanna reyki. Skrá þarf bekki í síðasta lagi 6. nóvember 2009.
Lesa meira
Reyksíminn og Lýðheilsustöð fara nú af stað með verðlaunasamkeppnina „Reyklaus 2009“ á Íslandi. Þessi keppni var haldin í fyrsta skipti í fyrra en þeir geta tekið þátt sem eru tilbúnir að hætta að reykja, eða eru þegar hættir, og geta miðlað góðri sögu af reynslu sinni sem gæti orðið öðrum hvatning í baráttunni gegn tóbakinu. Góð verðlaun eru í boði.
Lesa meira
Lýðheilsustöð styrkir í sumar ungt atvinnulaust fólk til að vinna að verkefnum sem hafa heilsueflingu og/eða forvarnir að markmiði og stuðla að tóbaksleysi. Til ráðstöfunar verða 5 milljónir króna en miðað er við að einstaklingar geti fengið 50.000 kr. styrk til að vinna verkefni sem stendur yfir í 2 vikur í sumar og að hámarki 150.0000 kr. fyrir verkefni sem stendur yfir í 6 vikur.
Evrópusamkeppni meðal reyklausra 7. og 8. bekkja í skólum landsins er lokið í ár. Bekkirnir kepptu að venju um lokaverðlaun, ferð til Danmerkur fyrir allan bekkinn, auk 2. og 3. sætis. Í ár tóku 324 skólar þátt og 100 lokaverkefni bárust, og hafa þau aldrei verið fleiri. 1. sæti hlaut 8. bekkur Grunnskóla Reyðarfjarðar.
Vakin er athygli á því að út eru komin drög klínískra leiðbeininga um meðferð við reykingum hjá Landlæknisembættinu. Leiðbeiningarnar eru birtar sem drög til umsagna en faglegar athugasemdir þurfa að berast fyrir 6. maí nk.
Lesa meiraÍ upphafi nýs árs huga margir að því að breyta lifnaðar-háttum sínum til hins betra, ekki síst að hætta að reykja. Lýðheilsustöð hefur að undanförnu minnt á það, með skilaboðum í fjölmiðlum, að betri árangur næst með því að fá aðstoð við að hætta að reykja. Einnig er minnt á að kostnaðurinn við reykingar er mjög hár.
Lesa meira
Dagur án tóbaks er árlega haldinn 31. maí. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) ákveður þema hvers árs og í ár er dagurinn helgaður viðvörunum, í formi mynda, á tóbaksvörur um hættuna af reykingum . Alþingi samþykkti í vor að innleiða á Íslandi Evróputilskipun um myndmerkingar á tóbaksvörur en Lýðheilsustöð hefur beitt sér fyrir því að það yrði gert.
Lesa meira