Beint í leiðarkerfi vefsins.
Alþjóðlegi dagurinn án tóbaks er haldinn 31. maí ár hvert og í ár er þema dagsins Tóbakslaus framtíð. Í tilefni af deginum efndi Lýðheilsustöð til málþings í morgun þar sem m.a. var í fyrsta sinn veitt sérstök viðurkennig fyrir starf í þágu tóbaksvarna á Íslandi. Viðurkenninguna hlutu þeir Þorvarður Örnólfsson, Pétur Heimisson og Jóhannes Jónsson.
Lesa meira
Lýðheilsustöð býður til málþings á Grand hóteli föstudaginn 30. maí kl. 8:15-10:00. Á þinginu mun heilbrigðisráðherra afhenda þeim viðurkenningu sem þykja hafa skarað fram úr í tóbaksvörnum og tóbaksmeðferð á Íslandi.
Lesa meira
Evrópusamkeppni meðal reyklausra 7. og 8. bekkja í skólum landsins er lokið í ár. Að venju keppa bekkirnir um lokaverðlaun, ferð til Danmerkur fyrir allan bekkinn. Dómnefnd mat þau rúmlega 70 lokaverkefni sem bárust og niðurstaðan liggur fyrir: Vinningshafi er 7. ÞEG í Hlíðaskóla.
Lesa meira
Veitinga- og skemmtistaðir á Íslandi hafa verið reyklausir frá því breytingar á tóbaksvarnalögum tóku gildi 1. júní 2007. Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar, sem gerð var sl. haust, á viðhorfi fólks til þessara breytinga. Almennt sýna niðurstöðurnar að fólk er ánægt og finnst betra að koma á þessa staði eftir breytingu þar sem andrúmsloftið hefur batnað svo mikið – og þar af leiðandi einnig vinnuaðstæður fólks á þessum stöðum.
Lesa meira
Reyksíminn og Lýðheilsustöð hafa ákveðið að setja af stað verðlaunasamkeppnina „Reyklaus 2008“.
Leitað er að þeim sem eru tilbúnir að hætta að reykja, eða eru þegar hættir, og búa yfir góðri sögu sem getur verið hvatning fyrir aðra í baráttunni gegn tóbaki. Verðlaunasamkeppnin er hluti af „European Smoke Free Awards 2008“ sem Evrópuráð reyksíma stendur að. Aðalverðlaun fyrir vinningshafann á Íslandi eru ferð til Amsterdam, á evrópsku verðlaunaafhendinguna, ásamt 100.000 krónum í gjaldeyri.
Lýðheilsustöð hefur látið útbúa sex nýjar tóbaksvarnaauglýsingar þar sem áhersla er lögð á mikilvægi þess að fá aðstoð við að hætta notkun tóbaks. Auglýsingarnar hafa verið að birtast á sjónvarpsstöðvunum frá áramótum og í ýmsum prentmiðlum.
Lesa meira