Beint í leiðarkerfi vefsins.
Munntóbaksnotkun fer vaxandi á Íslandi þótt bannað hafa verið að flytja munntóbak inn frá árinu 1997. ,,Munntóbaksleiknum" Ekki segja sííísss! er ætlað að vekja athygli ungs fólks - og annarra - á áhrifum munntóbaksnotkunar og er það gert með því að fá fólk til að taka þátt í leik á vefnum.
Lesa meira
Reyklaus bekkur-verkefnið er nú að fara af stað, 9. árið í röð, og allir 7. og 8. bekkir í grunnskólum landsins geta skráð sig til leiks.
Lesa meira
Þörf er fyrir fleiri úrræði sem styðja reykingafólk í að hætta tóbaksnotkuninni og fleira fagfólk sem sinnir þessu stuðningsstarfi. Lýðheilsustöð og Heilsugæslan stóðu fyrir fræðslufundi og námskeiði í hvetjandi samtalstækni og nokkur erindanna sem þar voru flutt eru nú aðgengileg hér á heimasíðunni.
Lesa meira
Lesa meira
Reykingabanninu á veitingarhúsum og skemmtistöðum hefur verið afar vel tekið hér á landi. Svo virðist sem landinn hafi verið fljótur að laga sig að breyttum aðstæðum. Reynslan frá öðrum löndum hefur sýnt hið sama í gegnum tíðina. Óhætt er að segja að lagabreytingarnar njóta víðtæks stuðnings meðal almennings, þrátt fyrir að vart yrði ákveðins kvíða um að draga myndi úr viðskiptum.
Lesa meira
Nú styttist í 1. júní 2007 en þá munu taka gildi breytingar á tóbaksvarnalögum. Þessar breytingr fela í sér að ekki má leyfa reykingar í þjónusturými veitinga- og skemmtistaða á Íslandi. Staðurinn skal vera alveg reyklaus og ekki má skipta í reyk og reyklaus svæði.
Lesa meira
Hafin er undirbúningur að því að á öllum tóbaksvörum, sem seldar eru á Íslandi, verði myndir til aðvörunar um skaðsemi tóbaks og kæmu þær þá í stað viðvaranna sem nú eru á þessum vörum. Íslendingar yrðu þá meðal fyrstu þjóða sem merktu tóbaksvörur á þennan hátt.
Lesa meira
Evrópusambandið hefur sent frá sér drög að stefnu - s.k. „Green paper“- um tóbaksvarnir í Evrópusambandslöndunum. Áður en stefnan verður samþykkt gefst öllum, sem áhuga hafa, tækifæri til að gefa álit sitt á henni.
Lesa meira
Frítt til Evrópu fyrir reyklausa var keppni ætluð ungu fólki á aldrinum 15-20 ára og liður í að hvetja ungt fólk á þessum aldri til reykleysis. Þátttakendum var skipt í tvo hópa, annars vegar reyklausa og hins vegar þeir sem reyktu en vildu hætta.
góð viðbót í hópi þeirra sem veita reykleysisaðstoð en það eru Lyf og heilsu-apótekin og ber að fagna þessu framtaki.
Lesa meira
Lýðheilsustöð sendir landsmönnum bestu óskir um gott og farsælt nýtt ár! 
Margir nota áramót sem tíma til að breyta einhverju í lífi sínu, s.s. til að huga betur að líkamlegri og andlegri heilsu. Margir ætla að minnka stressið, hreyfa sig meira, borða hollari mat og hætta að reykja. Lýðheilsustöð vonar að hún geti þarna orðið að liði og bendir í því sambandi á margt ágætis fræðsluefni sem hægt er að panta hjá stöðinni - eða einfaldlega lesa hér á síðunni.