Sími : 5 800 900

Tóbaksvarnir

Félagslíf menntaskóla reyklaust - 19.12.2005

Í byrjun þessa skólaárs tóku nemendafélög Menntaskólans í Reykjavík þá stefnu að halda öll böll og alla atburði félagslífsins reyklausa. Árangur þessarar herferðar hefur farið fram úr björtustu vonum, tvö reyklaus böll hafa þegar verið haldin við frábærar undirtektir nemenda og er reyklaust jólaball skipulagt þann 19. desember.

Lesa meira
 

Enn fækkar þeim sem reykja - 13.12.2005

Í nýrri samantekt þriggja kannanna, sem Gallup gerði fyrir Lýðheilsustöð, á tóbaksnotkun Íslendinga kemur í ljós að reykingar minnka enn. Lesa meira
 

Jákvæð viðhorf til reyklausra veitinga- og kaffihúsa - 9.12.2005

Nýverið gerðu nemendur við Háskólan í Reykjavík BSc verkefni þar sem skoðuð voru viðhorf gesta veitinga- og skemmtistaða, sem og viðhorf eigenda og starfsmanna, til lagasetningar um reyklaus veitingahús. Í ljós kom að viðhorfin eru almennt jákvæð bæði hjá gestum og eigendum, einnig að fáir telja sig síður fara á slíka staði ef þeir eru alveg reyklausir. Lesa meira
 

Til hamingju Súðavík! - 8.12.2005

Í fréttum sjónvarpsins þann 6. desember síðastliðinn kom fram að Súðavík væri orðin svo gott sem reyklaust sveitarfélag. Haldin hafa verið námskeið í bænum til að aðstoða fólk við að hætta að reykja og hefur bæjarbúum gengið vel að standa við reykleysið saman. Glöggir bæjarbúar telja aðeins tólf reykingamenn vera eftir í öllu sveitafélaginu, sem samtals telur um 200 manns. Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica